151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

staðfesting ríkisreiknings 2019 .

277. mál
[15:49]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég kvittaði ekki undir nefndarálit í þessu máli, ekki meiri hluta né neins annars, því að þegar ég leit yfir endurskoðunarskýrslu og álit í þessu og það var sagt að þetta væri í samræmi við lög um opinber fjármál þá henti ég því í ruslið, það er bara bull. Þetta er ekki í samræmi við lög um opinber fjármál. Það sér það hver sem vill ef þeir lesa einfaldlega lögin og þá framkvæmd sem á að vera. Ef við erum ekki heiðarleg með þau mistök sem við erum að gera eða vankanta og það sem skortir upp á þá batnar aldrei neitt. Þá erum við að hjakka í sama farinu og verða af þeim kostum sem lög um opinber fjármál bjóða upp á.

Hér er náttúrlega í heildina verið að fjalla um lög um opinber fjármál. Ég hef sérstaklega fjallað um 20. gr., um stefnumótun stjórnvalda. En þetta kemur einnig upp í t.d. fjáraukalögum sem eru samþykkt hér hægri vinstri núna og eiga að vera vegna ófyrirsjáanlegra atburða og þess háttar. En þegar lagðar eru fram tillögur í fjáraukanum, eins og var gert árið 2018 og 2019 og 2020 og bara alltaf, er það augljóslega ekki í samræmi við lög um opinber fjármál. Þannig að þegar maður sér svona athugasemdir þá dæma þær sig sjálfar og ég nenni ekki að taka þátt í svoleiðis, svo einfalt er það.

Ég ætla samt að fara yfir nokkur atriði sem ég hef vakið athygli á í fjárlagaumræðunni 2019 og almennt og hef bent á og fjallað um í andsvörum líka. Það er í fyrsta lagi uppgjör samninga samkvæmt lögum um opinber fjármál. Þar hef ég sérstaklega vakið athygli á alla vega einum samningi, en þeir eru fleiri. Ég var með skriflegar fyrirspurnir til ráðherra allra ráðuneyta um samninga þeirra og þar kom fram að það eru ýmsir samningar sem eru ekki með tímasetningu eða þá með gildistíma sem fer ekki samkvæmt 40. gr. í lögum um opinber fjármál, um samninga. Þar segir að það megi í raun ekki gera samninga til lengri tíma en fimm ára nema það komi sérstakur rökstuðningur fyrir því að þeir eigi að vera til lengri tíma, t.d. vegna þess að þetta sé stór fjárfestingarsamningur eða fjárfestingarverkefni eða eitthvað því um líkt, sem getur alveg verið málefnalegt. En við erum t.d. að glíma við samning, sem er kirkjujarðasamkomulagið og er búið að vera í gangi síðan 1997 eða 1998 þegar það var fyrst gert og var svo endurnýjað nýlega til 15 ára, ekki bara til fimm ára eins og lög gera ráð fyrir heldur til 15 ára. Og það var ekki reynt að rökstyðja af hverju það þurfti endilega að hafa 15 ára gildistíma. Eðlilega hefði átt að gera samning til fimm ára sem væri bara endurskoðaður þrisvar sinnum eða hvernig sem það væri til þess að komast upp í 15 ár ef það væri ekki búið að gera upp þær skuldbindingar sem liggja að baki þeim samningi. Í honum er verið að gera upp afhendingu kirkjujarða til ríkisins. Það er endanlegur listi yfir fjölda jarða sem kirkjan átti og ríkið á núna og í staðinn er þessi samningur upp á að ríkið greiði laun presta og ýmislegt svoleiðis. Það er til að greiða fyrir þennan lista af kirkjujörðum sem ríkið fékk.

Þá spyr maður að sjálfsögðu: Hvaða jarðir voru þetta? Árið 2018 vorum við búin að greiða 42 milljarða fyrir þessar jarðir og erum væntanlega komin hátt í 50 milljarða núna, þar um bil. Ef listinn er þarna fyrir framan okkur og við förum yfir það verðmætamat sem er á þeim jörðum og fasteignum sem þar eru undir þá ættum við að geta borið saman, alla vega námundað að einhverju leyti, og séð hvort það er búið að gera upp þá eignatilfærslu eða ekki, með vöxtum og öllu tilheyrandi. Kannski eru þessar afborganir samkvæmt samningnum, ef um er að ræða, svo litlar af höfuðstólnum eða einhverju því um líku að það tekur okkur 100 ár að greiða það upp, hver veit? Það skiptir ekki máli, við þurfum bara að vita það. Hver er listinn, hver er upphæðin sem við erum að borga og hvenær klárum við að greiða upp og gera upp þennan lista yfir eignir sem ríkið á núna? Fyrir utan allt það bókhaldslega og svoleiðis þá á að hvíla skuldbinding gagnvart þessum samningi á þessum jörðum. Þannig að ef þær eru seldar eða eitthvað því um líkt þá færist skuldbindingin eða selst með jörðinni eða breytist á annan hátt þannig að það uppfærist, þ.e. samningurinn sé með eitthvert verðgildi á móti í þessum fasteignum.

En við vitum ekki hvaða jarðir þetta eru. Við spyrjum og spyrjum og spyrjum og svarið hefur einfaldlega verið: Veit það ekki. Ríkissjóður, framkvæmdarvaldið, veit ekki hvaða jarðir þetta voru. Samt var í verkefninu sem var farið í árið 1984 og skilað 1992, það var skýrsla eitt og skýrsla tvö, ég man ekki alveg ártölin í þessu, farið gegnum allar jarðabækur og ég veit ekki hvað og hvað, afsöl og þinglýsingar fram og til baka, langt aftur í aldir. Út var gefinn listi yfir allar jarðir sem ekki var hægt að finna löglegt afsal fyrir sem gerði það að verkum að kirkjan átti ekki jörðina lengur, þ.e. kirkjujarðir þar sem ekki fannst neitt afsal fyrir eða sala á eða neitt svoleiðis sem færði jörðina eitthvert annað. Þetta er risastórt rit með lista yfir jarðir og fasteignamat með ýmsu tilheyrandi upp á um 1 milljarð kr. árið 1984, held ég að það hafi verið. Það uppfærist í um 3 milljarða á nýlegu verðgildi og kannski meira ef maður skoðar þróun fasteignavísitölu. En þetta er langt, langt frá þeim 50 milljörðum sem við erum komin upp í núna í borgun fyrir þetta kirkjujarðasamkomulag.

Þrátt fyrir að þessi skýrsla sé til og hafi verið unnin að frumkvæði hins opinbera er ekki hægt að svara því hvaða jarðir þetta eru sem við erum að borga fyrir í kirkjujarðasamkomulaginu, í þeim samningi sem er gert grein fyrir í fjárlögum og á að gera upp í ríkisreikningi samkvæmt lögum um opinber fjármál. Það er mjög merkilegt.

Ég lít svo á að þetta samningsákvæði um 15 ára gildistímann sé einfaldlega ólöglegt. Ólögleg samningsákvæði eru einfaldlega ekki til staðar. Það er hægt að hunsa þau. Alveg eins og ég get ekki samið mig frá kjarasamningum á þann hátt að ég semji um t.d. lægri laun eða launaleynd. Ég get skrifað undir samning þar sem stendur að það sé kvöð um launaleynd en það ákvæði hefur ekkert að segja, það hefur enga merkingu af því að það eru lög sem segja annað.

Þetta er eitt af þeim málum sem gera það að verkum að ríkisreikningur er ekki í samræmi við lög um opinber fjárlög.

Annað sem ég hef viljað skoða nýlega, og kom fram í andsvari mínu við hv. þm. Birgi Þórarinsson, er framkvæmd á lögum um opinber fjármál frá upphafi, frá stefnumótun, og til ársskýrslna ráðherra. Ferlið á að vera þannig að ríkisstjórn kemur með stefnu sína og segir: Þetta ætlum við að gera. Ríkisstjórnin á að segja: Þetta verkefni er besta leiðin til að leysa þennan vanda og aðrar leiðir eru verri af því að þær kosta meira, af því að það tekur lengri tíma að framkvæma þær og áhrifin koma seinna fram, ábatinn er minni. Það geta verið fullt af mismunandi ástæðum. Þá á alla vega að segja: Hér er listi af mögulegum lausnum sem við skoðum. Þetta er kostnaður og ábati við hverja af þeim hugmyndum sem voru uppi og við völdum leið B, eða eitthvað því um líkt, af því að hún kom best út. Þetta er rökstudd stefnumótun stjórnvalda sem er grundvöllur að því að við förum vel með almannafé. Við erum að velja hagkvæmustu leiðirnar á fjölbreyttan hátt. Við erum ekkert endilega að horfa bara á það sem er ódýrast heldur hvað skili bestum réttindum fyrir fólk eða öðrum samfélagslegum ábata sem er ekki auðvelt að mæla í fjármagni, en það er samt reynt að gera það á einhvern hátt.

Það þýðir t.d. að PPP-verkefni svokölluð eru alla jafna verri hugmynd en einföld ríkisframkvæmd, þ.e. útboð á vegum ríkisins þar sem hver sem er getur tekið þátt en tekur ekki þátt í kostnaði af þeirri áhættu að innheimta veggjöld og þess háttar. Gögn sýna að almennt séð kostar það 25–30% meira að fara í svoleiðis framkvæmd. Af hverju ættum við að eyða 25–30% meiri fjármagni í einhverja framkvæmd eða lausn frekar en í einhvern annan möguleika? Til hvers erum við að eyða svona miklu meiri pening? Bara af því að það uppfyllir einhverja hugmyndafræði? Væntanlega ekki. Það eru hins vegar til undantekningar frá þessu þar sem í ákveðnum stórum og flóknum verkefnum getur slíkt verkefni verið hagkvæmara. Þá þarf einmitt að útskýra það og segja: Almennt séð förum við ekki í PPP-verkefni af því að þau kosta einfaldlega meira að jafnaði en hérna er sérstakt verkefni, gæti verið Sundabraut þess vegna eða eitthvað því um líkt, sem hentar mjög vel í það út af fullt af mismunandi ástæðum sem gera að verkum að það er ekki eins og almennt er, 25–30% dýrara. Eins og við vitum er þetta alltaf dreifing, sum verkefni eru ódýrari, önnur eru mikið dýrari og að jafnaði 25–30% dýrari. Það þýðir líka að einhver eru ódýrari. Við viljum fylgjast með því líka og hafa þá valmöguleika með til þess að geta sagt: Þetta er besta lausnin í þessu tilviki. Ekki af því það er hugmyndafræðilega gott að fara í PPP-verkefni heldur af því að það er í alvörunni best. Þannig vinna Píratar. Þess vegna festum við okkur ekki til vinstri eða hægri eða á miðjuna heldur erum bara skilvirk, pragmatísk, í ákvörðunum okkar.

Í hugmyndafræðinni að baki PPP, sem sumir flokkar standa fyrir og finnst voðalega falleg, finnast stundum góðar lausnir. Það þýðir ekki að við veljum þær lausnir alltaf. Þótt hugmyndafræðin segi að markaðurinn skili góðri niðurstöðu þá gerir hann það ekki alltaf. Hann gerir það stundum, í vissum aðstæðum, undir vissum kringumstæðum með vissum reglum og uppsetningu og samkeppnishugsjónum o.s.frv. Við veljum þær lausnir, ekki alltaf markaðslausnina. Opinber rekstur er stundum mjög góður, skilar bestum árangri, nær bestu samningunum. Berum saman heilbrigðiskerfi og tökum t.d. kerfið í Bandaríkjunum sem er langdýrasta heilbrigðiskerfið og skilar alls ekkert meira en opinber kerfi gera annars staðar þar sem einn aðili sér um tryggingarnar en ekki margir. Það er ákveðin skilvirkni sem gerir það að góðri hugmynd samfélagslega séð að nota þann valmöguleika, af því að hann er einfaldlega ódýrari fyrir alla þegar allt kemur til alls.

Í heilbrigðiskerfinu erum við einmitt með í ríkisreikningi 2019 Landspítala – háskólasjúkrahús sem er að skila 3,8 milljörðum í rekstrarhalla. Það er mjög áhugavert því að samkvæmt lögum um opinber fjármál á ráðherra að bregðast strax við ef það er fyrirsjáanlegur rekstrarhalli hjá stofnunum, undirstofnunum hans. Var brugðist við? Ekki svo hægt sé að sjá. Þá var farið í ýmis hagræðingarverkefni en þau hagræðingarverkefni voru líka í öfuga átt. Það var svokallað Hekluverkefni en það var af því að það var mönnunarvandi, það vantaði hjúkrunarfræðinga, það vantaði fólk af því að sjúkrahúsið átti í erfiðleikum með launamál, af því að hjúkrunarfræðingar höfðu verið sendir í gerðardóm, eins og síðast og þar áður. Það var mönnunarvandi á spítalanum, fyrirsjáanlegur mönnunarvandi og spítalinn þurfti í rauninni að taka aukafjármagn, umfram fjárheimildir, sem er líka mjög áhugavert, og veita í þetta verkefni til þess að standa undir lögbundnum verkefnum. Það er fyrsta og síðasta verkefni spítalans, að sinna lögbundnum verkefnum og gera það eftir þeim gæðastöðlum sem við biðjum um. En í þessu tilviki þurfti að færa þarna til eða fara umfram rekstrarkostnað.

Í rauninni er ekki mjög góð hugmynd að gera það fram hjá fjárveitingavaldinu af því að samkvæmt stjórnarskránni má ekki greiða fé sem ekki er fjárheimild fyrir í fjárlögum eða fjáraukalögum. Það virðist vera slæmur siður að borga fyrst og spyrja síðan: Var ekki í lagi að við eyddum þessum peningi? Þannig er dínamíkin hérna, hjá framkvæmdarvaldinu gagnvart fjárveitingavaldinu. Það er borin ekki virðing fyrir því að það liggi hjá þinginu heldur er komið eftir á með fjáraukalög og spurt: Við eyddum nokkur hundruð milljónum, er það ekki í lagi? Ef Alþingi samþykkir það þá er það afturvirkt samþykki: Jú, það er í fína lagi, við hefðum hvort sem er samþykkt þetta fyrir fram. Er það þannig í alvöru eða hefði það kannski verið gert betur ef farið hefði verið eftir lögum um opinber fjármál og okkur sýnt af hverju þetta er besta lausnin? Við vitum það ekki af því að tekin var ákvörðun um að gera eitt eða annað án þess að sýna fram á hver ávinningurinn væri. Ávinningurinn t.d. í Hekluverkefninu var að það tókst að þó nokkru leyti að leysa þann mönnunarvanda sem var uppi. Árangurinn skilaði sér og af hverju ætti þá fjárheimildin ekki að fylgja? Vandamálið er að hún gerði það ekki. Þess vegna er spítalinn í mínus í rekstrarhalla, af því að fjárheimildin kom ekki eftir á. Það erum við að glíma við í ríkisreikningi 2019 sem sýnir uppsafnaðan rekstrarhalla út af auknum kostnaði við kjarasamninga, út af mönnunarvandanum sem fylgdi þeim, út af fráflæðisvandanum sem er búið að tala um í mörg, mörg ár og er ekki enn þá komin lausn á. Þetta er ríkisreikningur 2019 og við erum núna að tala um fjárlög fyrir 2021 og engin lausn á þessu þar heldur. Þetta er ekkert nýtt vandamál en það er ekki verið að laga það. Það er einfaldlega þannig. Það er engin skýr mynd af því að þetta sé vandinn og ef við komum með þetta mörg ný hjúkrunarrými, þetta miklu meiri heimaþjónustu, þá leysist sá vandi. Það muni kosta þetta mikið. Eigum við að fjármagna það? Það er ekki einu sinni spurt um það. Það var ekki spurt um það 2019 og það er ekki spurt um það 2021.

Þetta er ástæðan fyrir því að ég er ekki á nefndaráliti og skrifa ekki undir ríkisreikning 2019, af því að hann er ekki í samræmi við lög um opinber fjármál. Við erum enn að glíma við þann vanda sem birtist okkur í ríkisreikningi og það er ekkert verið að leysa hann.