151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

staðfesting ríkisreiknings 2019 .

277. mál
[16:08]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hlustaði á ræðu hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar. Ég kem ekki hér upp til að kljást hv. þingmann vegna skoðana hans — og þó. Hv. þingmaður kemur oft með mjög gagnlegar ábendingar og það skal sagt í upphafi. Hv. þingmaður segir að hann sé ekki samþykkur þessu frumvarpi um staðfestingu ríkisreiknings vegna þess að ríkisreikningur sé ekki í samræmi við lög um opinber fjármál. Þarna er bara greinarmunur á skoðunum okkar. Ég ætla því að koma því skýrt á framfæri að frumvarpið um staðfestingu ríkisreiknings er í fullu samræmi við lög um opinber fjármál, eins og 58. gr. laga um opinber fjármál kveður á um. Þessar tvær lagagreinar, 1. gr., um staðfestingu, og 2. gr., gildistökugreinin — bæði lagagreinarnar og greinargerðin, af því að kveðið er á um hvað skuli koma fram í greinargerð, eru í fullu samræmi við ákvæðið. Ríkisendurskoðandi, sem er stofnun á vegum Alþingis, skal samkvæmt 4. gr. í lögum um Ríkisendurskoðun endurskoða ríkisreikning og 59. gr. laga um opinber fjármál, um endurskoðun. Við skoðuðum stöðu endurskoðunarskýrslunnar aðeins í vinnu við álitið og fengum ríkisendurskoðanda á okkar fund til að fjalla um skýrsluna. Endurskoðunarskýrslan er í samræmi við 16. gr. laga um ríkisendurskoðanda þar sem hann gerir grein fyrir niðurstöðum og tillögum um úrbætur. Það er til hliðar við þetta frumvarp.