staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Hæstv. forseti. En verðum við ekki að skoða frumvarpið eins og það lítur út og sjá hvað það felur í raun í sér í samræmi við það lagaákvæði sem lög um opinber fjármál fjalla um? Hv. þingmaður virðist, að mér heyrist, hafa tekið ákvörðun um að samþykkja ekki þetta frumvarp vegna þess að það sé eitthvað allt annað og fleira í ferlinu sem hann sætti sig ekki við. Þegar við fáum ríkisreikning þá koma fram í stóru myndinni reksturinn; gjöld og tekjur, og efnahagsreikningur; eignir, skuldir og eiginfjárstaða, með skýringum og þess háttar. Nú er það bara þannig að ríkisendurskoðandi sem stofnun á vegum Alþingis hefur áritað reikninginn og gert það án fyrirvara og gefið sitt álit, að hann gefi glögga mynd af því sem hann á að gera. Í samræmi við öll hlutlæg gögn hefur Fjársýsla og ríkisaðilar fært sitt bókhald í debet og kredit, gjöld og tekjur eða eignir og skuldir eftir atvikum. Á bak við liggja hlutlæg gögn. Þetta hefur Ríkisendurskoðun endurskoðað í samræmi við lögin. Það er það sem við erum að fjalla um. Og það er það sem við erum að fara að greiða atkvæði um, að staðfesta þennan reikning. Ég sit einhvern veginn eftir með þá hugmynd að hv. þingmaður vilji endurskoða endurskoðunarvinnu ríkisendurskoðanda.