staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Virðulegur forseti. Ég hafði ýmsar spurningar um endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar og satt best að segja er ég ekki sáttur við þau svör sem komu. Ég lagði fram þær spurningar sem ég hafði varðandi stefnumótun stjórnvalda og það var bara gert lítið úr þeirri grein, að hún væri nú ekki eins og veigamikil og 7. gr. og eitthvað svoleiðis og það þyrfti ekkert að hugsa um hana. Með þeim orðum var Ríkisendurskoðun að segja að 20. gr. samkvæmt þeim og vinnu þeirra skipti engu máli. Ég er bara rosalega ósammála því. Mér finnst það vera nokkuð sem við ættum að eiga samtal um af því að þetta er okkar stofnun sem er í raun að framfylgja ákveðnu gæðaeftirliti í okkar þágu og spyr okkur ekki einu sinni hvað okkur finnist mikilvægt, sem er bara mjög merkilegt, finnst mér.
Mér finnst 20. gr. í lögum um opinber fjármál vera ein mikilvægasta greinin, ekki fjármálareglugreinin og eitthvað svoleiðis sem þarf hvort eð er alltaf að taka úr sambandi þegar eitthvert vesen kemur upp. En 20. gr. er grundvöllurinn að gæðunum í lögum um opinber fjármál sem skilar okkur ársskýrslunum sem eiga að útskýra af hverju fjárheimildunum hefur verið vel varið. Ef upphafið vantar er endirinn drasl. Það er einfaldlega þannig. Þegar Ríkisendurskoðun segir mér að 20. gr. skipti engu máli — ég er að umorða, þetta var ekki bein tilvitnun — þá geri ég bara miklar athugasemdir út frá mínu starfi sem þingmaður sem á að fylgjast með því hvernig farið er með fjárheimildir almennings. Þannig að já, ég myndi tvímælalaust vilja endurskoða endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar því að þessi rökstuðningur heldur ekki vatni.