151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

staðfesting ríkisreiknings 2019 .

277. mál
[16:17]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Eins og við höfum heyrt af ræðunum sem hér hafa verið fluttar er hægt að tala endalaust um ríkisreikninginn og það eru alls konar vinklar á þessu máli. Ég ætla ekki að halda langa ræðu. Það sem mig langar til að tala um er það sem ég finn ekki í ríkisreikningi. Nú má vera að þetta sé hér en ég vil beina því til formanns nefndarinnar, sem hér er í salnum, og hv. fjárlaganefndar að skoða þessi mál. Þannig er að í 56. gr. laga um opinber fjármál stendur í nokkrum liðum hvað fyrri hluti ríkisreiknings, hvað varðar fjárreiður A-hluta ríkissjóðs, eigi að innihalda. Í 7. lið stendur:

„Yfirlit sem sýni tekjur ríkissjóðs af nýtingu auðlinda í ríkiseigu og vegna takmarkaðra réttinda sem stjórnvöld ráðstafa.“

Í greinargerð frumvarpsins segir um þennan 7. lið:

„… heildstætt yfirlit yfir þær tekjur sem ríkissjóður hefur af nýtingu auðlinda í ríkiseigu og vegna ráðstöfunar takmarkaðra réttinda. Með þessu er leitast við að sýna þróun tekjuöflunar ríkissjóðs vegna auðlinda og réttinda sem ríkið er eigandi að eða ráðstafar gegn gjaldi.“

Hugmyndin með því að setja þetta í lög var að við gætum bara flett upp í ríkisreikningi og séð heildaryfirlit yfir hvað auðlindirnar okkar væru að gefa. Þegar við vorum að vinna að frumvarpinu um lög um opinber fjármál vorum við auðvitað með orkuauðlindirnar í huga, við vorum fiskveiðiauðlindina í huga og þessa stóru pósta og að við gætum þá fylgst með tekjunum sem við fengjum í kassann vegna þessara auðlinda þjóðarinnar. Ég tel það afskaplega mikilvægt að við getum fylgst með tekjustreyminu og þróuninni í þeim efnum. Ég vona að hv. formaður fjárlaganefndar taki þetta til sérstakrar athugunar.