151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

staðfesting ríkisreiknings 2019 .

277. mál
[16:22]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni, formanni fjárlaganefndar, fyrir þessar upplýsingar. Ég mun kynna mér þetta skjal frá Ríkisendurskoðun sem hann talaði um. Mér finnst þetta afskaplega mikilvægt atriði í lögunum. Ég veit að til að byrja með, fyrstu árin eftir að lögin tóku gildi, ýttu menn þessum lið aðeins á undan sér. Það átti bara að vera tímabundið en nú er komið á sjötta ár. Ef einhverjar skilgreiningar vantar og ef Alþingi þarf þá að breyta einhverjum lögum held ég að það væri ágætt að hvetja til þess að nefndin fari í þá vinnu, taki þetta alla vega til skoðunar og fari yfir það með sérfræðingum í þessum málum á hverju strandar hvað þetta varðar.