framlög úr jöfnunarsjóði.
Herra forseti. Þær risastóru áskoranir sem sveitarfélög landsins standa frammi fyrir vegna kórónuveirufaraldursins hafa varpað ljósi á þann leiða sið ríkisstjórnarinnar að nálgast málefni sveitarfélaga gjarnan út frá hefðbundnum pólitískum átakalínum frekar en hagsmunum íbúa. Ég spyr hæstv. ráðherra út í orð samráðherra hennar, formanns Framsóknarflokksins, vegna kröfu Reykjavíkurborgar um tekjujöfnunarframlag, jöfnunarframlag vegna reksturs grunnskóla og framlag vegna nýbúafræðslu, kröfu sem formaður Framsóknarflokksins kallaði fráleita og óskiljanlega aðför Reykjavíkurborgar að öðrum sveitarfélögum, aðför að landsbyggðinni.
Það er ekkert sem bendir til annars en að krafa borgarinnar sé fullkomlega réttmæt með tilliti til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Það lítur út fyrir að á vakt þessarar ríkisstjórnar og allt þar til lögunum var breytt að gefnu tilefni á síðasta ári hafi Reykjavíkurborg verið útilokuð með ólögmætum hætti frá framangreindum jöfnunarsjóðsgreiðslum. Ég spyr hæstv. ráðherra um þetta mál. Þeir fjármunir sem þarna eru undir snúast að stórum hluta um grunnskólamenntun í Reykjavík og menntamálaráðherra er jú þingmaður Reykvíkinga. Þetta snýst um rekstur grunnskólanna þar og stuðning við nemendur sem hafa íslensku sem annað tungumál.
Er að mati hæstv. ráðherra réttlætanlegt að stilla þessu máli upp sem baráttu landsbyggðar og höfuðborgarinnar? Við höfum sameiginlega hagsmuni af því að hér þrífist öflug byggð á landinu og sterk höfuðborg sem getur sinnt þessum skyldum sínum. Og við höfum líka hagsmuni af því að framkvæmd laga fari ekki eftir hentistefnu stjórnmálamanna hverju sinni. Mig langar til að fá fram afstöðu hæstv. ráðherra og þingmanns Reykvíkinga til þessara mála yfir höfuð.