151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

framlög úr jöfnunarsjóði.

[15:07]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og bendi á mikilvægi þess að við stöndum saman í þeirri baráttu að styrkja menntakerfið okkar; að menntun sé fyrir alla og við vinnum að því sameiginlega. Hvað kröfu Reykjavíkurborgar og jöfnunarsjóðinn varðar þá er það skiljanlegt og það eru allir að reyna að gera hvað þeir geta til að tryggja sinn rekstrargrunn. Ég mun ekki fara út í það á þessum tímapunkti hvernig dæmið lítur nákvæmlega út. Ég er hins vegar algerlega sammála hv. þingmanni um að það skiptir öllu máli að rekstur, og allt sem sveitarfélögin eru að gera, sé fullkomlega sjálfbær. Þar þurfa allir að huga að því hvernig reksturinn gengur. Við höfum unnið mjög mikið með Sambandi íslenskra sveitarfélaga í þessum kórónuveirufaraldri. Við höfum unnið að reglum um skólahald, það hefur verið gríðarlega mikið samráð við alla fræðslustjórana. Við höfum einnig unnið að heildarstefnu um menntamál, menntastefnu til ársins 2030. Við höfum einnig unnið að hvítbók um málefni barna með annað móðurmál en íslensku og þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur verið að fara í tengjast auðvitað sveitarfélögunum líka. Við skulum hafa það alveg á hreinu.