framlög úr jöfnunarsjóði.
Herra forseti. Mér þykir mjög miður að heyra að hæstv. ráðherra treysti sér ekki til að taka afstöðu til þessa máls vegna þess að þetta er einfalt. Er ríkisstjórnin og hæstv. ráðherra, þingmaður Reykvíkinga, búin að fara þannig ofan í þessi mál að hún geti svarað því annars vegar hvort hún telji hvort hér sé verið að brjóta lög á Reykjavíkurborg? Hins vegar eru orð samgönguráðherra, ráðherra sveitarstjórnarmála, mjög þung og að mínu mati ómakleg í garð stærsta sveitarfélags landsins, hvaða skoðun hefur hún á þeim? Það er óumdeilt að Reykjavík dregur vagninn þegar kemur að málefnum félagsþjónustu ýmiss konar og það kemur fram í skýrslu, í samantekt Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ég bendi áhugasömum á umfjöllun í Kjarnanum í dag. Þetta kemur til viðbótar. Ég bið ráðherra um að gefa upp afstöðu hæstv. menntamálaráðherra til þessara orða vegna þess að þetta er verulega skaðlegt þegar kemur að samskiptum sveitarfélaga landsins og öflugra stórra sveitarfélaga (Forseti hringir.) við ríkisvaldið. Ég bendi á að hæstv. samgöngumálaráðherra sagði einfaldlega að hér væri Reykjavík að brjóta á minni sveitarfélögum með því að ætla að sækja pening (Forseti hringir.) þangað því að það er samkvæmt lögum rangt.