framlög úr jöfnunarsjóði.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að fara yfir þær efnahagsaðgerðir sem ríkisstjórnin hefur verið að fara í. Ég ætla til að mynda að benda á háskólastigið og framhaldsskólastigið, og stærstu framhaldsskólarnir og háskólarnir eru allir hér í Reykjavík. Við erum að bæta milljörðum og aftur milljörðum bara í menntakerfið og svo sannarlega nýtur Reykjavíkurborg, þar sem ég er þingmaður, ágóða og ávinnings af því. Við erum algerlega að ná utan um framhaldsskólana okkar með því að bæta í. Menntakerfið er að taka á móti 3.500 nýjum nemendum á háskóla- og framhaldsskólastiginu og allt þetta nýtist auðvitað stærsta sveitarfélaginu, Reykjavíkurborg. Það er af og frá, og afskaplega ómálefnalegt af hv. þingmanni, að segja að ríkisstjórnin sé ekki að styðja við öll sveitarfélögin. Ég ætla að nefna eitt: Það sem hefur verið að gerast er að ríkisstjórnin hefur aukið skuldir sínar en hún er að fara úr 20% af landsframleiðslu í yfir 60%. Auðvitað nýtist það öllum í landinu. Ég kann ekki að meta málflutning sem er alltaf á þann veg að segja: Það eru einhverjir sem búa í Reykjavík og einhverjir sem búa á landsbyggðinni. Við erum öll í þessu saman.