151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

fátækt.

[15:13]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrirspurnina. Ég get þó ekki gert honum það til geðs að svara eingöngu því sem hann vill að ég svari. Ég hlýt að fara yfir það sem við höfum verið að gera fyrir þessa hópa. Af því að ég veit að hv. þingmanni er t.d. annt um hag örorkulífeyrisþega vil ég nefna 50.000 kr. eingreiðslu, sem gert er ráð fyrir þegar Alþingi hefur lokið við að afgreiða hana, til þessa hóps sem við vitum að stendur höllum fæti. Ég vil nefna desemberuppbót fyrir atvinnuleitendur sem félags- og barnamálaráðherra hefur kynnt. Ég vil líka nefna þá staðreynd að þessi ríkisstjórn hefur hækkað atvinnuleysisbætur á þessu kjörtímabili, fyrst árið 2018 og munu þær síðan hækka aftur nú um áramót. Þær munu þá hafa hækkað um ríflega 30% á þessu kjörtímabili á meðan fjárhagsaðstoð sveitarfélaga hefur því miður ekki hækkað með sama hætti, sem er auðvitað áhyggjuefni.

Ég vil líka segja að við höfum verið að styðja betur við félagasamtök sem sinna því sem hv. þingmaður gerir hér að umtalsefni. Bæði hefur hæstv. félagsmálaráðherra stutt við hjálparsamtök og sömuleiðis hefur ríkisstjórnin sett tilteknar fjárhæðir af ráðstöfunarfé sínu til þessara samtaka vegna jólanna.

Hv. þingmaður stillir þessu hins vegar upp með fjölmiðlafrumvarpinu sem er til umræðu hér síðar í dag. Ég held að það sé hagsmunamál okkar allra sem hér sitjum, og erum fulltrúar á Alþingi, á samkundu sem á að taka ákvarðanir fyrir samfélagið, að fjölmiðlar geti staðið undir sínum mikilvægu skyldum til að veita okkur sem hér erum nauðsynlegt aðhald sem þörf er á í lýðræðissamfélagi. Ég vil minna á að þær tillögur sem hæstv. menntamálaráðherra mælir hér fyrir eru ekki sprottnar úr lausu lofti. Þær eru að mörgu leyti sambærilegar við það sem við sjáum annars staðar á Norðurlöndum þar sem slíkur stuðningur er einmitt til staðar og er ætlað að efla lýðræðislega umræðu og aðhald í samfélaginu.