fátækt.
Herra forseti. Fólkið fyrst, en lýðræðið er líka mikilvægt fyrir fólkið. Auðvitað er alltaf vandmeðfarið að forgangsraða, en þegar við tökum það saman sem ég fór hér yfir, m.a. sérstakrar ráðstafanir vegna örorkulífeyrisþega, atvinnuleitenda, aukinn stuðning við hjálparsamtök, sem ég vitna hér í, má alveg sjá skýra forgangsröðun. Lýðræðið er ekki þannig vaxið að við getum bara sett það til hliðar og geymt það, ekki frekar en jafnrétti kynjanna. Stór hluti af lýðræðinu er að þetta fjórða vald, fjölmiðlarnir, sé virkt og standi undir hlutverki sínu. Ég vitna aftur til þess að þetta höfum við séð önnur Norðurlönd gera, þ.e. að styðja við fjölmiðla þannig að lýðræðisleg umræða sé tryggð, en það er ekki þar með sagt að þeir þurfi ekki áfram að reka sig að mestu leyti sjálfir. Það er hugsunin á bak við frumvarpið sem hér er til staðar í dag. Ég held að það þjóni ekki hagsmunum fólks að stilla hagsmunum þess og hagsmunum lýðræðisins upp sem andstæðum því að þeir fara saman.