151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

málefni SÁÁ.

[15:24]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Af því að hv. þingmaður nefndi hér sérstaklega álfasöluna í fyrri spurningu sinni þá er það ekki síst vegna þess að hún eðli máls samkvæmt fellur niður sem hv. fjárlaganefnd hefur tekið þessi mál til skoðunar. Ég er sammála því og fagna því sérstaklega hversu mikið áherslan hefur aukist á göngudeildarstarfsemi til að koma til móts við fjölbreyttari hópa en jafnframt þessa fjölskyldumiðuðu nálgun sem endurspeglast í aukinni sálfræðiþjónustu fyrir börn og fyrir fjölskyldur. Hér er um að ræða stöðu sem snýst ekki bara um þann einan eða þá eina sem í henni hafa lent heldur ekki síður allt umhverfið og fjölskylduna. Oftar en ekki er rétt líka, með hjálp sérfræðinga og sálfræðinga, að fara í saumana á áfallasögu viðkomandi til að ná skarpri sýn á vandann og mögulegar lausnir.