umhverfismál.
Herra forseti. Íslendingar eru á meðal mestu ruslara í Evrópu samkvæmt nýjustu tölum frá Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Hér á landi verða árlega til 700 kíló af rusli á mann. Magnið minnkar sáralítið og stutt er rökum að á Íslandi sé losun gróðurhúsalofttegunda með því mesta í heiminum. Við tölum samt um það eins og við séum í nokkuð góðum málum. Ný loftslagsáætlun þykir metnaðarfull en veldur vonbrigðum. Svört skýrsla, sem kynnt var á efnahagsráðstefnunni í Davos á þessu ári, sýnir að auðlindanotkun er komin í nýjar hæðir og sögulegar. Mannkynið hefur aldrei gengið jafn hratt og mikið á auðlindir jarðar. Lítið ber á sjálfbærni og endurvinnsla minnkar.
Í nýrri skýrslu, sem Capacent gerði fyrir loftslagsráð hér á landi, er dregin upp dökk mynd af stöðunni. Þar segir að stjórnsýsla í loftslagsmálum sé veik og verkaskipting óskýr og það sé fyrst og fremst ástæða þess að loftslagsbókhaldið skáni ekkert. Þessar ástæður, engar kerfisbreytingar og óraunhæfar spár um mikinn samdrátt að óbreyttu séu skýrar vísbendingar um að við munum engan veginn ná markmiðum Parísarsáttmálans fyrir árið 2030, hvað þá meira. Ef eitthvað sé færumst við fjær þeim markmiðum. Hér á landi skorti heildstæða pólitíska sýn um loftslagsvænt samfélag og þingið sé raunar talsvert fjarri umræðunni.
Þess vegna er hún svo brýn og tímabær, tillaga Samfylkingarinnar, sem við birtum í tíu liðum, um græna atvinnubyltingu þar sem gengið er út frá því að á öllum stigum, t.d. í samgöngum, menntun, fjárfestingu og landnýtingu, sé þetta meginþráður alla leið. Lítil merki sjást um þetta í áætlunum ríkisstjórnarinnar.
Ég spyr ráðherra: Er ríkisstjórnin ósamstiga í þessum mikilvæga málaflokki? Er þetta ekki áfellisdómur sem að framan greinir? Er staðan ekki grafalvarleg og er það ekki meira en lífsspursmál og brýnt að taka sig strax á, berja markvisst í brestina og vinna að þessum málum með miklu öflugri, markvissari og beinskeyttari hætti en hingað til hefur verið gert?