151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

krabbameinsskimanir kvenna.

[15:37]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Nú um áramótin færist skimun fyrir leghálskrabbameini til heilsugæslunnar og brjóstaskoðun færist frá Krabbameinsfélagi Íslands og verður á ábyrgð Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri. Fyrir nokkru var hafinn undirbúningur á þessari tilfærslu og var markmiðið nokkuð skýrt í upphafi, líkt og kom fram í óundirbúinni fyrirspurn sem ég lagði fyrir hæstv. heilbrigðisráðherra í byrjun febrúar síðastliðinn. En svo skall á okkur heimsfaraldur og allt álagið sem honum fylgir á heilbrigðiskerfið. Það skipti miklu máli að samfella verði í skipulagðri leit að legháls- og brjóstakrabbameini hjá konum og að konur geti með vissu treyst á að skimun verði með öruggum hætti áfram. Því miður hefur raunin verið sú að konur hafa ekki verið eins duglegar að sækja þessa þjónustu síðustu ár, en með góðum undirbúningi og tryggri þjónustu væri hægt að auka það á ný. Því er ég komin aftur í óundirbúnar fyrirspurnir með áhyggjur mínar af stöðu þessara mála.

Virðulegi forseti. Miklu skiptir að við þessar breytingar falli ekki niður sú reynsla og þekking sem byggst hefur upp hjá Krabbameinsfélaginu og best væri að unnið væri markvisst að því að bæta mætingu kvenna í krabbameinsleit. Því spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra: Hefur tekist að þjálfa upp ljósmæður og þá aðila sem sjá eiga um skimun fyrir leghálskrabbameini, eins og til stóð, á heilsugæslum um landið? Samhæfingarstöð krabbameinsskimana skal hafa yfirumsjón með hópleit að krabbameinum á Íslandi. Hvar stendur sá undirbúningur fyrir þeirri miðstöð og hefur hún verið mönnuð? Stendur til að nýta þá þekkingu sem byggst hefur upp hjá Krabbameinsfélaginu með því að starfsmenn sem unnið hafa þar að þessum málum verði ráðnir á heilsugæsluna um landið? Og að lokum: Til stendur að flytja eigi úr landi smásjárskoðun frumusýna. Er þá ekki hætta á þekkingarleka og ófyrirsjáanleika í þeim málefnum og að þekking á þessum málum haldist ekki hér á landi?