151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

krabbameinsskimanir kvenna.

[15:40]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sem hlotið hafa sérstaka þjálfun munu taka leghálssýni á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu með sama hætti og ljósmæður og hjúkrunarfræðingar hafa gert á heilsugæslustöðvum á landsbyggðinni frá árinu 2015. Þjálfun ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga er nú þegar hafin og er gert ráð fyrir að henni ljúki í janúar eða febrúar. Ekki munu verða miklar breytingar á heilsugæslum úti á landi og verður framkvæmdin þar með sama sniði og áður. Starfsmenn Krabbameinsfélags Íslands eru nú, í samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisstofnanir úti um land, að þjálfa ljósmæður og hjúkrunarfræðinga sem sinna munu þessari framkvæmd eftir áramót. Reynsla þeirra og þekking mun því halda áfram að nýtast í þessu breytta skipulagi krabbameinsskimana. Undirbúningurinn að Samhæfingarstöð krabbameinsskimanna gengur vel og verkefnastjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að vinna í uppsetningu á bókunarkerfinu sem Samhæfingarstöðin mun hafa umsjón með. Hjá Samhæfingarstöðinni munu starfa í kringum sjö starfsmenn, en þó í mismunandi starfshlutföllum. Þessi hópur samanstendur af ýmsum sérfræðingum, svo sem læknum, hjúkrunarfræðingum, talnasérfræðingum og riturum.

Eins og fram kom áðan eru ekki miklar breytingar á heilsugæslum úti á landi og framkvæmdin þar mun verða með sama sniði og áður, en starfsmenn Krabbameinsfélagsins eru nú, í samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisstofnanir úti á landi, að þjálfa ljósmæður og hjúkrunarfræðinga. Reynslan mun því áfram nýtast og heilsugæsla úti á landi hefur boðið þeim ljósmæðrum áframhaldandi starf sem nú eru í verktakavinnu við að taka þessi sýni. Varðandi frumusýni og smásjárskoðanir eru samningsmál hvað það varðar hjá Sjúkratryggingum sem vinna nú að gerð tímabundins samnings um úrlestur sýna.

Virðulegi forseti. Ég mun koma ítarlegar að þessu í seinna svari mínu.