151. löggjafarþing — 32. fundur, 7. des. 2020.
krabbameinsskimanir kvenna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og er ánægjulegt að heyra að þrátt fyrir Covid sé verið að vinna áfram og stöðugt að þessu máli. Svo held ég kannski áfram en nú stendur til að flytja skimun fyrir krabbameini í brjóstum frá Skógarhlíðinni að Eiríksgötu 5 á vormánuðum. Er það húsnæði tilbúið og er búið að tryggja þá starfsmenn sem flytja þangað og að starfsemin verði í samfellu við það sem hefur verið hingað til?