151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

krabbameinsskimanir kvenna.

[15:42]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Áfram varðandi sýnin. Rannsóknir frumusýna auk HPV-sýna verða tímabundið gerðar erlendis á meðan unnið er að fyrirkomulagi til lengri tíma. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um það hvar frumusýnin verða rannsökuð eftir að tímabundinn samningur rennur út. Landlæknir lagði til að úrlestur á frumusýnum yrði á Landspítala en sjúkrahúsið er ekki í stakk búið til þess að taka strax við því verkefni enda hefur álagið á sjúkrahúsið verið mikið undanfarið vegna Covid eins og öllum er kunnugt. Þátttaka í skipulegri skimun fyrir krabbamein í leghálsi er meginforsenda þess að ná tilætluðum markmiðum um að lækka nýgengi og dánartíðni. Til að ná fram þessum markmiðum þarf m.a. að tryggja öryggi og gæði rannsókna.

Hv. þingmaður spyr líka um húsnæði og aðstöðu við Eiríksgötu. Gengið hefur verið frá mönnun á Landspítala til að taka við þessu hlutverki og Landspítali hefur boðið hluta af starfsfólki frá Krabbameinsfélaginu vinnu. Húsnæðið á Eiríksgötunni var afhent Landspítala í síðustu viku og er áætlað að það verði tilbúið í byrjun apríl. Eins og áður segir hefur Landspítali boðið starfsfólki Krabbameinsfélagsins áframhaldandi vinnu hjá spítalanum eftir áramót.