151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi.

112. mál
[16:48]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við höfum í þessari umræðu einmitt rætt um þann vanda sem hefur skapast við hækkandi matvælaverð í þróunarlöndunum. Það vekur auðvitað upp alls kyns siðferðisleg álitaefni sem vert er að ræða. Menn hafa rannsakað þetta mikið og stærstu umhverfisverndarsamtökin hafa mörg hver gersamlega skipt um skoðun þegar kemur að þessum efnum, þegar kemur t.d. að kostum þess að rækta maís í þeim tilgangi að búa til maíspoka eða nota í eldsneyti.

Ég ætla ekki að dæma menn hart. Þegar menn prófa að fara út í slíkar aðgerðir þá koma auðvitað upp ný sjónarmið sem kannski höfðu ekki hvarflað að mönnum í blábyrjun. En um leið og mönnum verða ljósar neikvæðar afleiðingar af svona aðgerðum eiga þeir ekki að þráast við. Þá eiga menn að bregðast við því, skipta um skoðun og skipta um gír, ef svo má segja. Þetta álitaefni kemur ekki bara upp þegar kemur að eldsneytismálum eða matvælamálum. Það kemur auðvitað líka upp þegar við tölum um orkuskipti. Við getum trútt um talað hér á Íslandi og í Noregi sem höfum nóg rafmagn og getum bara ætlast til þess að bílaframleiðendur framleiði fyrir okkur rafmagnsbíla og að alltaf sé til markaður fyrir þá. Fæst ríki eru í þeirri stöðu. Það má ekki verða þannig að stærstum hluta heimsins, sem eru kannski þróunarlönd og stór og fjölmenn ríki, verði settur stóllinn fyrir dyrnar og dregið verði úr lífsgæðum fólks og möguleikum þess til að framfleyta sér með því að banna því að nota jarðefnaeldsneyti til þess t.d. að kynda húsin sín. Kannski er ekkert annað í stöðunni enn sem komið er en við erum öll að færast til betri vegar í þessu. (Forseti hringir.) En það má ekki verða þannig að menn svari ekki siðferðislegum spurningum þegar kemur að þeim mikla mun sem er á þróunarlöndunum og vestrænum ríkjum.