151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[16:51]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég flyt hér fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar nefndarálit með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um samvinnufélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um hlutafélög og lögum um sameignarfélög, viðurlög vegna hlutfalls kynja í stjórn. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín gesti auk þess sem nefndinni bárust umsagnir frá fjórum aðilum.

Með frumvarpinu er lagt til að það varði dagsektum ef ekki er farið eftir ákvæðum laga um kynjahlutföll í stjórnum félaga sem lögfest voru með lögum nr. 13/2010 og lögum nr. 49/2011. Gefinn var rúmur aðlögunartími og tóku ákvæðin gildi 1. september 2013. Með þeim var einkahlutafélögum, hlutafélögum og síðar samvinnufélögum og sameignarfélögum þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli, m.a. gert að tryggja að þegar stjórnarmenn væru fleiri en þrír skyldi hlutfall hvors kyns ekki vera lægra en 40%.

Almennt var í umsögnum og í máli gesta fyrir nefndinni lýst stuðningi við frumvarpið. Í umsögn Alþýðusambands Íslands segir að verkalýðshreyfingunni hafi tekist að jafna hlutföll kynjanna í stjórnum þeirra lífeyrissjóða sem hún á aðild að. Það séu vonbrigði hversu illa fyrirtækjum hafi gengið að fylgja lögum eftir og því styðji ASÍ þá tillögu sem lögð er fram með frumvarpinu.

Lágmarkshlutfall kvenna og karla í stjórnum félaga. Í umsögnum við meðferð málsins fyrir nefndinni var bent á að í kjölfar laga um kynrænt sjálfræði er ekki rétt að tala um hvort kyn, þar sem samkvæmt lögum eru kynin nú fleiri en tvö. Skrifstofa jafnréttismála benti á að réttara væri að breyta orðalagi frumvarpsins til samræmis við orðalag í frumvarpi forsætisráðherra til nýrra heildarlaga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, sem lagt hefur verið fram á Alþingi, en verði það samþykkt óbreytt falli úr gildi lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008. Vísað var til orðalags í 28. gr. fyrrgreinds frumvarps til nýrra jafnréttislaga. Þar er með 1. mgr. lagt til að við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli þess gætt að hlutfall kvenna og karla sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða. Í greinargerð þessa frumvarps segir að þó að ákvæði 1.–3. mgr. 22. gr. sé efnislega samhljóða 15. gr. gildandi jafnréttislaga sé lagt til að orðin „kvenna“ og „karla“ komi í stað orðsins „kynjanna“. Regla um tiltekið lágmarkshlutfall karla og kvenna í nefndinni geti eðli málsins samkvæmt tæpast tekið til einstaklinga með skráningu hlutlauss kyns, enda ólíklegt að sá hópur verði ýkja stór í samanburði við fjölda kvenna og karla. Hins vegar er lagt til að bætt verði við ákvæði sem kveði á um að reglan um lágmarkshlutfall kvenna og karla komi ekki í veg fyrir tilnefningar og skipan einstaklinga með skráningu hlutlauss kyns í nefndir, ráð og stjórnir á vegum hins opinbera.

Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið að breyta megi orðalagi í hverjum 2. málslið 1.–4. gr. frumvarpsins þannig að í stað orðanna „hvors kyns“ komi „kvenna og karla“. Meiri hlutinn bendir jafnframt á að framangreint orðalag, „hvors kyns“, á sér samsvörun í þeim ákvæðum gildandi laga sem gerir fyrirtækjum skylt að tryggja að hlutfall hvors kyns í stjórn sé að lágmarki 40% þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír, samanber 1. mgr. 27. gr. laga um samvinnufélög, 1. mgr. 39. gr. laga um einkahlutafélög, 1. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög og 13. gr. laga um sameignarfélög. Meiri hlutinn hvetur því ráðuneytið til að taka til endurskoðunar þau ákvæði laganna þar sem kveðið er á um hlutföll hvors kyns í stjórnum og að orðalag ákvæðanna verði uppfært, m.a. með tilliti til laga um kynrænt sjálfræði sem heimila einstaklingum að skrá kyn sitt sem hlutlaust.

Verði frumvarpið samþykkt verður heimilt að beita tiltekin félög dagsektum tryggi þau ekki aukið lágmarkshlutfall karla og kvenna í stjórnum félaga, samanber 1. málslið í 1.–4. gr. frumvarpsins. Markmið dagsektar er að knýja þau félög sem falla undir ákvæðin til að tryggja að hlutföll bæði kvenna og karla í stjórnum sé að lágmarki 40%. Við meðferð málsins fyrir nefndinni kom fram að mikilvægt væri að gert yrði skýrt að við ákvörðun um beitingu dagsekta væri litið til umfangs starfsemi félaga og virkni þeirra. Í því samhengi var bent á að verði frumvarpið samþykkt muni dagsektir taka til félaga þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli. Því sé ljóst að ákvæði um dagsektir muni ekki taka til félaga með umsvifaminni starfsemi.

Skatturinn benti í umsögn sinni á að með lögum um skráningu á raunverulegum eiganda, nr. 82/2019, var lögum um fyrirtækjaskrá breytt, m.a. á þann veg að þar eru nú lögfestar heimildir til að beita dagsektum ef ekki eru veittar umbeðnar upplýsingar eða kröfum um úrbætur ekki sinnt innan hæfilegs frests. Jafnframt er bent á að afar áríðandi sé að hafið sé yfir allan vafa hvenær, hvernig og við hvaða aðstæður skuli beita dagsektum. Mikilvægt sé að almennt samræmi sé í framkvæmd og álagningu slíkra dagsekta sem í frumvarpinu greinir. Skatturinn leggur í umsögn sinni til að um álagningu og framkvæmd dagsekta verði litið til þeirra ákvæða laga um fyrirtækjaskrá sem varða álagningu og framkvæmd dagsekta. Jafnframt sé sérstaklega litið til þess fjárhæðarmismunar sem er á milli dagsekta samkvæmt 1.–4. gr. frumvarpsins og ákvæða í lögum um fyrirtækjaskrá.

Meiri hlutinn fellst á þau sjónarmið og leggur til viðeigandi breytingar á efni frumvarpsins en telur ekki rétt að fjárhæðum dagsekta verði breytt til hækkunar frá þeirri hámarksfjárhæð sem lögð er til. Meiri hlutinn vekur athygli á að með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að beita viðurlögum við tiltekinni háttsemi félaga. Meiri hlutinn bendir á að gera þarf skýrt að heimild til álagningar dagsekta er falin ríkisskattstjóra. Ákvörðun um álagningu dagsekta er stjórnvaldsákvörðun og mikilvægt að gætt sé að ákvæðum stjórnsýslulaga við alla málsmeðferð. Meiri hlutinn áréttar jafnframt að mikilvægt sé að gæta meðalhófs við álagningu dagsekta og um ákvörðun fjárhæða þar sem tekið er tillit til m.a. umsvifa reksturs og fjárhagslegs styrkleika viðkomandi aðila.

Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum.

Hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Haraldur Benediktsson og Njáll Trausti Friðbertsson skrifa undir álit þetta með fyrirvara. Hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk áliti þessu. Auk þess skrifa undir þetta álit hv. þingmenn Lilja Rafney Magnúsdóttir, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og Halla Signý Kristjánsdóttir.

Ég tek það fram að flutningsmenn þessa nefndarálits kalla málið inn í atvinnuveganefnd milli 2. og 3. umr.