151. löggjafarþing — 32. fundur, 7. des. 2020.
samvinnufélög o.fl.
56. mál
Virðulegi forseti. Jafnrétti kynjanna er þörf okkar allra og er nauðsynlegt, líka í fyrirtækjum, hvort sem það er í reglum eða lögum hér á landi. Eins og ég sagði þá liggja fyrir upplýsingar um félög úr ársreikningum 2018 sem eru yfir 50 ársverk. Þau voru 394 talsins og af þeim eru einungis 66 félög sem uppfylla þessi ákvæði. Þannig að staðreyndirnar liggja fyrir og þörfin til að bæta sig í þessum málum er sannarlega fyrir hendi.