151. löggjafarþing — 32. fundur, 7. des. 2020.
samvinnufélög o.fl.
56. mál
Virðulegi forseti. Ég held ég snúi bara þessari spurningu við og segi: Af hverju í ósköpunum hafa fyrirtæki ekki getað uppfyllt þessar skyldur? Það er nefnilega þannig og mér finnst þetta alltaf svolítið sérstakt. Ég man eftir því þegar Búnaðarfélag Íslands hélt upp á 150 ára afmæli sitt, þá var fyrsta konan kosin í stjórn. Þá var það fullyrt að í 150 ára sögu Búnaðarfélags Íslands hefði aldrei fundist hæf kona til að vera í stjórn. Við erum svolítið á þessum stað enn þá.