151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[17:13]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þessi lög hafa gilt í nokkurn tíma og enginn hefur setið inni fyrir þessi ákvæði þó að það sé svona lágt hlutfall, þannig að ég óttast það ekki. Það verði bara meðalhófs gætt, eins og segir í nefndarálitinu:

„Meiri hlutinn áréttar jafnframt að mikilvægt er að gætt sé meðalhófs við álagningu dagsekta og um ákvörðun fjárhæða þar sem tekið er tillit til m.a. umsvifa reksturs og fjárhagslegs styrkleika viðkomandi aðila.“

Það verði gætt meðalhófs. Ég efast ekkert um að það sama verði um þetta og lögin núna. Fyrst það hefur ekki komið til þess að einhver hafi verið lokaður á bak við lás og slá upp á rúgbrauð og vatn (Forseti hringir.) þá held ég að þessu verði ekki heldur óhóflega beitt í þessu sambandi þó að það sé verið að hnykkja aðeins á því að það þurfi að fara að lögum.