samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Ég er ekki viss um að hv. þingmaður hafi vitað af þessu ákvæði í hlutafélagalögum og lögum um einkahlutafélög. Það er heimild til að beita mönnum sektum eða allt að eins árs fangelsi fyrir að fara ekki eftir þessum lögum, en látum það liggja á milli hluta. En sektargreiðslurnar, dagsektirnar sem eiga að vera allt að 100.000 kr. á hverjum degi, eiga að fara eftir fjárhagslegum styrk. Það er engin tilraun gerð, hvorki í frumvarpinu í greinargerð né nefndaráliti sem liggur hér fyrir, til þess að skilgreina hvað er fjárhagslegur styrkur. Og það er með ólíkindum að þingheimur ætli að setja á sektarákvæði sem er óframkvæmanlegt vegna þess að það er alveg ljóst að fjárhagslegur styrkur er mismunandi skilgreindur eftir atvinnugreinum. Eitt fyrirtæki getur talist fjárhagslega sterkt ef það væri t.d. (Forseti hringir.) með starfsemi í verslun, en væri fjárhagslega veikt ef það væri í sjávarútvegi o.s.frv. (Forseti hringir.) Það hlýtur að vera, hæstv. forseti, lágmarkskrafa að menn skilgreini a.m.k. (Forseti hringir.) og gefi einhverja lögskýringu á því hvað er átt við með fjárhagslegum styrk.
(Forseti (GBr): Hv. þingmenn eru beðnir um að virða hin knöppu tímamörk.)