151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[17:16]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér er talað um að það sé gætt meðalhófs. Ef það er ekki nægilega skýrt í fyrri lögum varðandi sektarákvæði og annað — ég hef svo sem ekki svör endilega við því hvort það hafi verið farið í einhverja greiningu á styrkleika viðkomandi aðila. Nei, það vantar, rétt eins og má lesa í nefndarálitinu, og ég veit ekki nákvæmlega hvort hægt sé að koma fram með slíka greiningu svo að skotheld sé. En alla vega tökum við þetta með okkur inn í nefnd á milli 2. og 3. umr.