151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[17:17]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Ólafur Ísleifsson) (M):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti minni hluta atvinnuveganefndar um frumvarp um breytingu á lögum um samvinnufélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um hlutafélög og lögum um sameignarfélög. Þetta snýst um viðurlög vegna hlutfalls kynja í stjórn eins og menn þekkja. Ég vil byrja á því að taka það fram, virðulegi forseti, að um það markmið almennt talað að tryggja jafnrétti karla og kvenna ríkir enginn ágreiningur af hálfu okkar flutningsmanna þessa minnihlutaálits, enda er jafnrétti karla og kvenna meðal grunngilda íslensks samfélags. Hins vegar setur minni hlutinn spurningarmerki við það hvort sú aðferð sem mælt er fyrir í þessu frumvarpi, þ.e. mjög íþyngjandi dagsektir sem geta numið 3 millj. kr. á mánuði eða 36 millj. kr. á ári, svo notaðar séu námundaðar tölur, sé æskileg til að vinna að því markmiði og, virðulegur forseti, standist kröfur um meðalhóf.

Minni hlutinn, sem samanstendur af þeim sem hér stendur og hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni, lagði á vettvangi atvinnuveganefndar fram tvær spurningar um frumvarpið sem bornar voru undir Stefán Má Stefánsson, prófessor og sérfræðing í félagarétti. Í fyrsta lagi spurði minni hlutinn hversu langt ríkisvaldinu væri heimilt að ganga með hliðsjón af grundvallarsjónarmiðum í félagarétti og eftir atvikum eignarrétti, m.a. um frjálsa meðferð fólks á eignum sínum, með kröfu á hendur atvinnufyrirtækjum til að ná fram þjóðfélagslegum markmiðum með fjárhagslegum þvingunarúrræðum á borð við dagsektir, líkt og kveðið er á um í frumvarpinu.

Nefndinni barst svar frá Stefáni Má Stefánssyni í bréfi, sem því miður hefur einhverra hluta vegna ekki ratað inn sem umsögn enda kannski ekki ritað sem umsögn heldur sem bréf. Í svari Stefáns Más kom eftirfarandi fram, með leyfi forseta, varðandi fyrri spurninguna um hversu langt ríkisvaldinu væri heimilt að ganga með hliðsjón af grundvallarsjónarmiðum í félagarétti og eignarrétti til að ná þjóðfélagslegum markmiðum með slíkum úrræðum:

„Hafa ber í huga að félagafrelsi og eftir atvikum eignarréttur þeirra er varinn af ákvæðum stjórnarskrárinnar gagnvart ýmsum ráðstöfunum af hálfu ríkisvaldsins, þar með talið löggjafans, sbr. einnig 11. gr. MSE. Af þessum sökum er meginreglan sú að félög ráða sjálf málum sínum og teljast jafnframt eigendur eigna sinna. Þennan rétt er þó unnt að skerða ef slíkar skerðingar hafa stoð í málefnalegum sjónarmiðum, þar á meðal sjónarmiðum um meðalhóf. Það væri t.d. málefnalegt sjónarmið að leitast við með setningu laga að jafna hlutföll milli karla og kvenna í stjórnum sumra félaga.“ — Sumra, segir þarna. — „Gæta verður þó meðalhófs. Það þýðir að leita verður leiða sem skerða sem minnst rétt félaga til að ráða sjálf málum sínum og eigum en geta engu að síður verið til þess fallnar að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Sé um að ræða félög sem eru í eigu ríkis eða sveitarfélaga eru mun ríkari heimildir fyrir hendi til þess að setja lög af fyrrgreindu tagi.“

Ég vek athygli á þessum orðum í bréfi prófessors Stefáns Más: „Sé um að ræða félög í eigu ríkis eða sveitarfélaga …“ Gagnályktun, því hér situr nú lagakennari í salnum, það er náttúrlega nærtækt að sjá fyrir sér að annað eigi við um önnur félög sem ekki eru í eigu ríkis eða sveitarfélaga, þ.e. félög af því tagi sem hér er fjallað um, samvinnufélög, hlutafélög, einkahlutafélög og samlagsfélög. Stefán heldur áfram:

„Fyrirliggjandi frumvarp gæti því samrýmst slíkum félögum.“ — Þ.e. félögum sem eru í eigu ríkis eða sveitarfélaga. — „Meiri vafi ríkir hins vegar þegar um einkafyrirtæki er að ræða. Í öllu falli þyrfti þá lagaheimild af þessum toga að vera skýr og fyrirsjáanleg. Það þýðir að þvingunarúrræðum verður vart beitt nema lagaheimild teljist nægjanlega skýr og að gættum hugsanlegum undantekningum sem þurfa sömuleiðis að vera skýrar. Eins þurfa að vera leidd rök að því (t.d. í lögskýringargögnum) að vægari úrræði væru ekki tæk til að ná markmiðinu um kynjahlutföll í stjórnum.“

Þetta var um fyrri spurninguna sem við í minni hluta atvinnuveganefndar lögðum fram. Í öðru lagi spurði minni hlutinn hvaða kröfur gera bæri um málsmeðferð á vettvangi stjórnvalds sem falið væri vald til að beita íþyngjandi aðgerðum eins og mælt er fyrir um í frumvarpinu með tilliti til rannsóknarreglu, meðalhófs, andmælaréttar, upplýsingaskyldu stjórnvalda o.fl. og hvaða sjónarmið um sveigjanleika í ljósi ólíkra aðstæðna gætu átt við. Í svari Stefáns kom fram að svarið færi fyrst og fremst eftir heimildarlögunum. Væri um opna heimild að ræða væri öruggara að fara varlega og beita ekki heimild nema um tiltölulega augljósa vanrækslu væri að ræða. Í hlutafélögum og einkahlutafélögum gætu auðveldlega komið fyrir tilvik þar sem félag gæti ekki tryggt jafna stöðu kynja. Það ætti t.d. við þar sem hlutfallskosning er viðhöfð. Við slíkar aðstæður væri tæpast ráðlegt að leggja á dagsektir. Einnig yrði að gæta að öllum stjórnsýslureglum og í því sambandi væri rétt að skoða stöðu þess stjórnvalds sem leggur á dagsektir og möguleika á að kæra slíkar ákvarðanir til æðra stjórnsýslustigs.

Þar höfum við það, herra forseti. Þetta eru þau svör sem liggja fyrir í þessu máli. Minni hlutinn telur að framangreint, þ.e. svör prófessors Stefáns Más Stefánssonar, gefi tilefni til að gera breytingar á frumvarpinu þannig að sveigjanleiki verði aukinn og til að tryggja að meira hófs verði gætt við íhlutun stjórnvalda um málefni atvinnufyrirtækja. Þá telur minni hlutinn nauðsynlegt að félagi sem dagsektir beinast að sé tryggður skýr réttur til að leita eftir endurskoðun slíkrar ákvörðunar á stjórnsýslustigi enda mikill munur á kostnaði og fyrirhöfn eftir því hvort ákvörðun er kærð til æðra stjórnvalds eða borin undir dóm.

Í lok álitsins segir:

Minni hlutinn telur af framangreindum sökum að málið sé ekki tilbúið til afgreiðslu. Nauðsynlegt sé að því verði vísað aftur til nefndarinnar til nánari umfjöllunar á milli 2. og 3. umr. þar sem tekin verði nánar fyrir þau atriði sem talin hafa verið til.

Framsögumaður meiri hluta lýsti því hér í ræðu sinni að málið yrði aftur tekið fyrir í atvinnuveganefnd og þá þarf auðvitað að ræða málið miklu nánar en tækifæri hefur gefist til.

Herra forseti. Ég ætla að gera aðeins að umræðuefni það sem segir í frumvarpinu, í niðurlagi. Þar er viðurkennt af hálfu flutningsmanna að hér sé um töluvert inngrip að ræða, eins og komist er að orði og þar segir, með leyfi forseta:

„Þrátt fyrir að um töluvert inngrip sé að ræða telja flutningsmenn nauðsynlegt að grípa til slíkra aðgerða“ — eins og hér um ræðir, þessara dagsekta — „til að ákvæði um kynjahlutföll í stjórnum samvinnufélaga, einkahlutafélaga, hlutafélaga og sameignarfélaga nái markmiði sínu. Jafnframt sé löggjafanum heimilt,“ — þarna er verið að lýsa áliti flutningsmanna — „þrátt fyrir eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, að setja athafnafrelsi nauðsynlegar skorður séu fyrir því eðlilegar og málefnalegar ástæður.“

Þetta er náttúrlega skoðun og viðhorf sem fólki er frjálst að hafa en það er mjög alvarleg spurning, eins og hér hefur komið fram í umræðunum í andsvörum, m.a. í máli hv. þm. Brynjars Níelssonar, hvort þetta standist raunverulega eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Ég ætla að leyfa mér það, herra forseti, að lýsa hér ákveðnum efa um að svo sé.

Í nefndaráliti meiri hluta er að finna breytingartillögu og þar er sagt að meiri hlutinn bendi á að gera þurfi skýrt að heimild til álagningar dagsekta sé falin ríkisskattstjóra. Sömuleiðis segir þar að mikilvægt sé að gætt sé meðalhófs við álagningu dagsekta og um ákvörðun fjárhæða þar sem tekið er tillit til m.a. umsvifa reksturs og fjárhagslegs styrkleika viðkomandi aðila. Ég verð að spyrja, herra forseti, þrátt fyrir þessi orð um meðalhóf af hálfu meiri hluta nefndarinnar, hvar er það að finna í þessu máli? Hvar er meðalhófið? Sem dæmi segir í breytingartillögum meiri hlutans að dagsektir skuli ákveðnar með úrskurði ríkisskattstjóra. Svo segir, með leyfi forseta:

„Nú vill félag ekki una ákvörðun samkvæmt ákvæði þessu og getur það þá höfðað mál til ógildingar hennar fyrir dómstólum.“

Herra forseti. Því er slegið algerlega föstu hér að félag hafi engan möguleika á að kæra úrskurð ríkisskattstjóra til æðra stjórnsýslustigs heldur eigi þann kost einan að höfða mál með þeirri fyrirhöfn og tilkostnaði sem slíku vitaskuld fylgir. Hvar er meðalhófið í þessu, herra forseti? Í breytingartillögu segir enn fremur að þrátt fyrir málshöfðun til ógildingar ákvörðunar ríkisskattstjóra leggist dagsektir áfram á viðkomandi aðila. Þar er sem sagt ekkert um það að málshöfðunin fresti réttaráhrifum og dagsektir falli niður á meðan úr því fáist skorið fyrir dómstólum hvort ákvörðun ríkisskattstjóra fái staðist. Síðan segir að óinnheimtar dagsektir falli ekki niður þótt félag verði síðar við kröfum ríkisskattstjóra, nema ríkisskattstjóri samþykki lækkun eða niðurfellingu þeirra með úrskurði. Hvar er meðalhófið þarna? Ákvarðanir um dagsektir, segir í breytingartillögu meiri hlutans, eru aðfararhæfar. Hvar er meðalhófið í þessu? Það er mjög margt þarna að athuga. Við getum bara byrjað á því að ekki er gert ráð fyrir neins konar kæruheimild á stjórnsýslustigi.

Herra forseti. Í áliti minni hlutans er lagt upp úr meðalhófi, reyndar er það gert líka í áliti meiri hlutans en það meðalhóf finnst bara ekki þrátt fyrir leit. Ég nefni hérna nokkur dæmi. Lagafrumvarpið tekur til allra fyrirtækja af þeirri gerð sem um er fjallað, þ.e. allra samvinnufélaga, allra einkahlutafélaga, allra hlutafélaga og allra sameignarfélaga. Hér eru engar undantekningar, enginn sveigjanleiki. Er það eitthvað í ætt við meðalhóf?

Herra forseti. Fjárhæð þessara dagsekta er tilgreind sem allt að 100.000 kr. á dag. Það var orðað hérna af einum hv. þingmanni sem 700.000 kr. á viku. Við hv. þm. Sigurður Páll Jónsson notuðum aðra viðmiðun, 3 millj. kr. á mánuði og ef við margföldum það með 12 erum við komin upp í 36 milljónir á ári. Það eru engar smáfjárhæðir. Þetta gildir, herra forseti, fyrir öll félög og hér er enginn sveigjanleiki og engar undanþáguheimildir og ekki neitt. Ekki hefur með nokkru móti verið sýnt fram á það í málatilbúnaði flutningsmanna að ekki sé hægt að ná þeim árangri sem stefnt er að, eða þeim markmiðum sem frumvarpið stefnir að, með hófsamari úrræðum, mildari aðgerðum. Það hefur ekki verið sýnt fram á það. Það hefur ekki einu sinni verið sýnt fram á það, eins og hér kom fram í umræðunni áðan, að þegar kemur að, við skulum segja hlutfalli kynja í stjórnum, við skulum segja skráðra félaga á hlutabréfamarkaði, að það hlutfall hér á landi hafi í fyrsta lagi verið rannsakað og í annan stað hefur ekkert komið fram um að það hafi með raunhæfum hætti verið borið saman við sams konar hlutföll í löndum sem við viljum bera okkur saman við.

Herra forseti. Þetta frumvarp er, vægast sagt, ekki tilbúið til afgreiðslu. Í fyrsta lagi eru stórir annmarkar á því af þeim ástæðum sem ég hef nefnt hérna, hér vantar allan sveigjanleika, allar undanþágur og einnig vantar að skilgreina hvað felst í viðmiðunum um fjárhæðir úr rekstri og því þar sem talað er um umsvif reksturs og fjárhagslegan styrkleika viðkomandi aðila, að það eigi að geta haft áhrif á álagningu dagsekta. En það hefur ekkert komið fram um það með neinum hætti hvaða stærðir það eru og hvernig með þær skuli fara. Það vantar í raun og veru miklu meiri greiningu og athugun á þessu máli, íhugun, ígrundun, fyrir utan það, herra forseti, sem sárlegast vantar, það er meðalhófið, því það er hvergi að finna í málinu.