samvinnufélög o.fl.
Forseti. Eins og hefur kannski komið fram þá er ég ekkert sérstaklega hrifinn af þessu frumvarpi. Hv. þingmaður sat í þessari nefnd þegar málið var tekið til umfjöllunar, og situr, og ég tek eftir því að þarna er borinn saman árangur í Noregi og á Íslandi. Lágu einhver gögn fyrir um það hvernig reglurnar eru í Noregi og hvernig þær eru á Íslandi, um þessa skyldu? Var farið nákvæmlega yfir það? Var rætt um það hvers eðlis þessi inngrip eru í eignarrétt og atvinnufrelsi manna? Komu stjórnlagaspekingar fyrir nefndina? Hvaða umræða fór fram? Hvaða umsagnir bárust? Voru Samtök atvinnulífsins beðin um umsögn? Eða flaut þetta bara einhvern veginn allt saman í gegn á grundvelli einhverra pólitískra markmiða? Var ekki farið nákvæmlega yfir það, sem er auðvitað stórmál, að beita þvingunum, þvingunum ríkisvaldsins, þvingunum sem fela í sér refsingar, til að ná einhverjum pólitískum markmiðum? Þetta er óvenjulegt. Mér er alveg sama þó að menn geti talið þessi markmið mikilvæg eða góð og gild. Það eru einu sinni ákvæði af þessu tagi í stjórnarskrá sem við erum alltaf að reyna að fara eftir, og manni sýnist að málið hafi einhvern veginn runnið í gegnum nefndina án þess að farið hafi verið ítarlega yfir það.