151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[17:43]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég er mjög áhyggjufullur yfir málsmeðferð af þessu tagi. Mér finnst menn nálgast eignarréttinn og frelsið af mikilli léttúð og ætla að ná pólitískum markmiðum sínum, sem menn telja að vísu þjóðhagslega hagkvæmt, gott og vel, eða þjóðhagslega mikilvægt, en er auðvitað bara pólitík, með því að beita þvingunum og refsingum af hálfu ríkisvaldsins. Ég gæti skilið frumvarp um ívilnanir fyrir þau fyrirtæki sem hefðu jafnari kynjahlutföll í stjórn. Það er svolítið annað en að beita refsivendinum. Þegar maður skoðar greinargerð með frumvarpinu er ekki að sjá neitt almennilegt í greinargerðinni um að þessi umræða hafi verið tekin, að sérfræðingar í stjórnlagafræðum hafi metið það svo að það væri eðlileg þróun að beita ríkisvaldinu með þessum hætti til að ná markmiðunum.

Ég velti líka fyrir mér: Var engin umræða í nefndinni um það hvað felst í hugtakinu jafnrétti, eins og það er skilgreint í stjórnarskrá? Er jafnrétti virkilega það að í stjórn séu jafn margir af hvoru kyni, í þessu landi sem er nú u.þ.b. að verða kynlaust? Er það virkilega þannig að jafnræðisreglan snúi að því að það séu jafn margir af hvoru kyni á hverjum stað? Ekki það að menn eigi rétt? Ég er alveg hættur að skilja þetta og í mínum huga er þetta ákvæði í stjórnarskrá að verða fullkomlega merkingarlaust, satt best að segja.