151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[17:45]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Ólafur Ísleifsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég gat ekki heyrt að hv. þingmaður beindi neinni spurningu til mín í seinna andsvari sínu. (Gripið fram í.) Ég held að ekki sé skoðanaágreiningur á milli okkar í þessu máli. Ég lagði í ræðu minni áherslu á það sem segir af hálfu meiri hlutans, eða öllu heldur flutningsmanna, þar sem þeir viðurkenna að um töluvert inngrip sé að ræða, ég vakti sérstaka athygli á því. Ég vakti sömuleiðis athygli á því að þar er lýst skoðun flutningsmanna, hún er ekki rökstudd og henni fylgja ekki nein gögn, ekki frekar en upplýsingum frá Noregi. Til að bregðast við þessu gripum við þingmenn Miðflokksins í nefndinni, ég og hv. þm. Sigurður Páll Jónsson, til þess að leggja fram spurningar um þau grundvallaratriði sem hv. þm. Brynjar Níelsson leggur svo mikla áherslu á hér. Hann talaði mest um eignarréttinn og það gerðum við, en við lögðum líka áherslu á grundvallarsjónarmið í félagarétti og í þriðja lagi á grundvallarsjónarmið í stjórnsýslurétti vegna þess að við fjölluðum um það sérstaklega hver málsmeðferðin þyrfti að vera þegar um svo íþyngjandi aðgerðir væri að ræða eins og hér um ræðir. Hér er verið að leggja á háar dagsektir og þær eru aðfararhæfar sem leggur enn meiri skyldur á herðar þeim sem að þessu standa. Ég get alveg tekið undir það með hv. þingmanni að ég gæti vel óskað mér þess að hér á hv. Alþingi væri oftar fjallað með málefnalegri hætti um hin ýmsu mál.