151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[17:47]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég ætla hér að vera með smávegis innlegg um frumvarp til laga um breytingu á lögum um samvinnufélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um hlutafélög og lögum um sameignarfélög sem hefur verið til umfjöllunar í hv. atvinnuveganefnd og er komið fyrir þingið til 2. umr. Hér er á margan hátt um kostulegt frumvarp að ræða og kem ég nánar að því síðar í ræðu minni. Það er enginn ágreiningur um að við eigum að leitast við að tryggja jafnrétti kynjanna á sem allra flestum sviðum og sú viðleitni er sífellt í gangi, herra forseti. Við styðjum að sjálfsögðu jafnrétti kynjanna í eins miklum mæli og unnt er. Í því hafa verið nokkrar framfarir á síðustu árum og vil ég hér leyfa mér að vísa í umsögn Kvenréttindafélags Íslands um frumvarpið. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Samkvæmt tölum frá Hagstofunni voru árið 2018 konur 28,8% stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50–99 starfsmenn,“ — næstum 30% — „36,4% í stjórnum fyrirtækja með 100–249 starfsmenn og 39,4% í fyrirtækjum með 250 eða fleiri starfsmenn.“

Þetta er rétt við þau mörk sem eru sett í þessum lögum, bara rétt við þau. Þetta er alveg að nást. Og þetta eru tveggja ára gamlar tölur. Hugsanlega eru tölurnar skárri í dag. Við erum að fjalla um lög þar sem á að þvinga þetta fram með þeim hætti sem í frumvarpinu greinir. Hversu langt má ganga? Stjórnvöld setja ýmis lög til að ná ýmsum þjóðfélagslegum markmiðum sínum og ná fram pólitískum stefnumálum. Þeim er þó sniðinn ákveðinn stakkur í þeim efnum sem reyndar er oft teygður nokkuð og togaður, sérstaklega á umliðnum árum. Varðandi þetta frumvarp kæmi helst til greina eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar en það ákvæði setur stjórnvöldum ákveðnar skorður hversu langt þau geta gengið í því að skerða eignarrétt manna. Enginn vafi er á að þessi mörk eru mun lægri þegar um er að ræða félag sem er í eigu ríkisins eða stjórn stofnana þess eða félög sem sækja tekjur sínar að mestu eða öllu leyti í opinbera sjóði. Á því er minni vafi að þar getur ríkisvaldið gengið harðar fram og sett ýmis ákvæði til að þjóna ýmsum samfélagslegum og jafnvel pólitískum markmiðum sínum.

Herra forseti. Það er einnig líklegt að ríkisvaldið geti gengið lengra í þessum efnum þegar um er að ræða almenningshlutafélög sem eru á skrá á markaði enda starfa þau félög í skjóli markaðar sem varinn er af víðtækri löggjöf hins opinbera og sætir opinberu eftirliti í mun meira mæli en önnur félög sem í einkaeigu eru. Frumvarpið fjallar minnst um þessi ofangreindu félög eða stofnanir ríkisins heldur er þar skipað svo fyrir að í stjórnum allra hlutafélaga, samvinnufélaga, einkahlutafélaga og sameignarfélaga, sem hafa a.m.k. fimm manna stjórn og yfir 50 starfsmenn, skuli kynjahlutföll verið með ákveðnum hætti, þ.e. að ekki minna en 40% stjórnarmanna séu af öðru kyninu. Loks er það sem hér skiptir öllu máli, að mínu mati, leggja á til dagsektir ef ekki verður farið eftir ákvæðum laganna, frá 10.000 upp í 100.000 á dag.

Herra forseti. Hvað er hér á ferðinni? Hefur meiri hluti hv. atvinnuveganefndar áttað sig fyllilega á því hvað er hér á ferðinni? Mér er næst að halda að þau hafi bara ekki áttað sig á þessu. Meiri hluti nefndarinnar, sjö þingmenn úr öllum flokkum, meira að segja þrír hv. þingmenn úr Sjálfstæðisflokki Íslands, skrifa undir þetta frumvarp eftir að hafa rætt það í nefndinni og þrátt fyrir að í henni séu til allrar hamingju tveir hv. þingmenn úr Miðflokknum sem hafa reynt að rétta kúrsinn í þessum efnum eins og nefndarálit þeirra ber glögglega vitni um, rétta kúrsinn vegna þess að í þessu frumvarpi er gengið fram á ystu nöf í því að skerða eignarrétt og sjálfsákvörðunarrétt manna sem eiga fé eða eignir í félögum af einhverju tagi. Þeir eru leiddir inn í þær aðstæður að þeir eru ekki algerlega sjálfráðir um það hvern eða hverja þeir kjósa í stjórn þess félags. Þeir ráða því bara ekki alfarið sjálfir. Þeir þurfa að taka tillit til atriða sem koma fram í þessu frumvarpi. Hér er gengið mjög nærri eignarréttinum að mínu mati, herra forseti. Við erum að ræða um þvingunarúrræði. Þeim stjórnvöldum sem eiga að hafa eftirlit með þessum félögum, hver á sínu sviði, er veitt vald til að þvinga þetta fram með því að leggja dagsektir á félögin. Og þær eru ekki af lakari taginu, allt upp í 100.000 á dag eða 3 milljónir á mánuði meðan þau stimpast á móti þessu.

Við skulum aðeins líta örlítið betur á þessa heimild til að leggja á dagsektir, herra forseti. Í þessu frumvarpi til breytinga á lögum er ekkert ákvæði að finna um hvernig með skuli fara, þ.e. þegar stjórnvaldið leggur á dagsektir; hvert eigi að kæra, hver sé kærufrestur o.s.frv. Líklega ber að líta, skyldi halda, til almennra reglna stjórnsýslulaganna sem eru almenns eðlis að þessu leytinu til. Þar er ýmislegt sem ég vil benda á að mætti hugsanlega setja inn. Ef menn ætla að fara þessa leið vantar auðvitað ýmislegt upp á að hún sé fyllilega réttlætanleg gagnvart þessum félögum, t.d. varðandi almenna reglu stjórnsýslulaganna um að kæra fresti ekki réttaráhrifum. Er það eðlilegt, herra forseti, þegar um er að ræða eignarrétt manna í félögum að einhver nefnd úti í bæ eða stjórnvald úti í bæ leggi á dagsektir sem eru svona háar? Og þær halda áfram að tikka og félagið kærir en þá getur viðkomandi stjórnvald farið í aðför eins og heimilt er þarna. Það er bein aðfararheimild. Stjórnvöldum er meira að segja gefið þetta eftirsótta hagræði sem alla lánardrottna dreymir um, að geta farið beint í aðför. Þau þurfa ekki að leita neitt lengra heldur en að fara bara beint og tryggja kröfu sína í félaginu. Kæra frestar þessum aðgerðum ekkert. Vegna þess hversu hart er gengið fram gagnvart eignarréttinum í frumvarpinu sakna ég þess að þar sé t.d. ekkert um sérstaka málsmeðferð varðandi þetta, um að kæra fresti og að þessi beina aðfararheimild sé tekin út. Ég geri athugasemdir við fjárhæð sektanna sem mér finnst vera of há. Það er fljótt að koma í háar upphæðir þegar heimildin er svona víðtæk.

Ég spyr einnig, herra forseti, hvort ekki mætti ná fram með jákvæðari hætti því þjóðhagslega markmiði að kynjahlutföll í stjórnum verði með jafnari hætti heldur en menn kannski vilja pólítískt. Ég sé að í nefndarálitinu kemur fram að þetta hafi verið í lögum um nokkurn tíma og lítið gengið. Mér sýnist nú samt að hlutfall þess kyns sem er fámennara í þessum stjórnum sé komið upp í þriðjung og jafnvel upp í 40% í mörgum tilvikum. Þannig að einhver árangur hefur nú orðið. En það er spurning um jákvæða hvata, t.d. varðandi vottun, jafnræðisvottun og jafnréttisvottun eða eitthvað slíkt, og annað í þeim dúr, heldur en að ganga alla þessa leið.

Ég veit ekki alveg á hvaða vegferð menn eru þegar þeir fara svona áfram. Þingmenn allra flokka sem í nefndinni eru, nema þingmenn Miðflokksins, stökkva umhugsunarlítið á þennan vagn eins og hefur komið fram í umræðunni um málið núna. Líkt og kom fram í andsvörum áðan virðast menn ekki hafa litið til annarra landa, ekki einu sinni með hvaða hætti þetta er þar. Þannig að ég vil virkilega átelja vinnubrögðin í þessu máli og offorsið og fljótræðið. Meginreglan er sú að frjáls félög og sérstaklega þau sem menn leggja fjármagn sitt í eiga auðvitað að ráða málefnum sínum sjálf að svo miklu leyti sem það fer ekki í bága við landslög. Eins er það með eignarréttinn, menn sem ákveða að kaupa hlutafé í félagi eiga auðvitað að ráða því sjálfir hvað þeir gera við það, hvort þeir kaupi eða selji og hvern þeir kjósi í stjórn.

Þetta getur verið sérstaklega bagalegt, herra forseti, þegar maður er kannski hluthafi í félagi ásamt einhverjum öðrum og á að kjósa sinn mann í stjórn og það kemur að því að maður vill fá ákveðinn aðila í stjórnina. Þá er sagt: Nei, nei, þú mátti ekki kjósa þennan vegna þess að við þurfum að uppfylla kynjakvóta. Er þetta bara í lagi, herra forseti? Það getur verið mjög erfið aðstaða, t.d. varðandi hlutfallskosningu í félögum. Menn eru kannski búnir að kjósa tvo, þrjá stjórnarmenn. Þá eru þeir sem eiga eftir að kjósa neyddir til að kjósa annað kynið. Kandídat þeirra, sem er kannski reyndur maður sem hefur verið í stjórn lengi, nú eða kona, kemst ekki að vegna þess að það þarf að uppfylla kynjakvótann. Eða þurfa menn að semja um það áður hver á að kjósa hvern? Þarna er bara gengið á eignarréttinn með mjög harkalegum hætti.

Það er ekki eins og minni hluti atvinnuveganefndar hafi sofið á verðinum. Þeir fengu Stefán Má Stefánsson, prófessor í lögum, til að svara nokkrum spurningum, í fyrsta lagi spurningu um hversu langt væri hægt að ganga og hvenær væri stigið yfir þau mörk sem stjórnarskráin setur til varnar eignarrétti manna. Ég ætla að lesa upp úr minnihlutaálitinu varðandi svar prófessorsins, með leyfi forseta:

„Hafa ber í huga að félagafrelsi og eftir atvikum eignarréttur þeirra er varinn af ákvæðum stjórnarskrárinnar gagnvart ýmsum ráðstöfunum af hálfu ríkisvaldsins, þar með talið löggjafans. Af þessum sökum er meginreglan sú að félög ráða sjálf málum sínum og teljast jafnframt eigendur eigna sinna. Þennan rétt er þó unnt að skerða ef slíkar skerðingar hafa stoð í málefnalegum sjónarmiðum, þar á meðal sjónarmiðum um meðalhóf. Það væri t.d. málefnalegt sjónarmið að leitast við með setningu laga að jafna hlutföll milli karla og kvenna í stjórnum sumra félaga. Gæta verður þó meðalhófs. Það þýðir að leita verður leiða sem skerða sem minnst rétt félaga til að ráða sjálf málum sínum og eigum en geta engu að síður verið til þess fallnar að ná þeim markmiðum sem að er stefnt.

Sé um að ræða félög sem eru í eigu ríkis eða sveitarfélaga eru mun ríkari heimildir fyrir hendi til þess að setja lög af fyrrgreindu tagi. Fyrirliggjandi frumvarp gæti því samrýmst slíkum félögum.“

Hvað er prófessorinn að segja þarna, herra forseti? Hann er raunverulega að þrengja þetta. Hann er að þrengja þetta. Hann er að benda á að eðlilegt væri að setja svona lög um ákveðin félög. Hann nefnir þarna félög sem eru í eigu ríkis og/eða sveitarfélaga o.s.frv. Hann er í raun að þrengja þetta.

„Meiri vafi ríkir hins vegar þegar um einkafyrirtæki er að ræða. Í öllu falli þyrfti þá lagaheimild af þessum toga að vera skýr og fyrirsjáanleg. Það þýðir að þvingunarúrræðum verður vart beitt nema lagaheimild teljist nægjanlega skýr og að gættum hugsanlegum undantekningum sem þurfa sömuleiðis að vera skýrar. Eins þurfa að vera leidd rök að því, t.d. í lögskýringargögnum, að vægari úrræði væru ekki tæk til að ná markmiðinu um kynjahlutföll í stjórnum.“

Herra forseti. Stefán Már Stefánsson prófessor var einnig spurður um kröfur um málsmeðferð. Ég ætla að lesa það svar að hluta til hér, með leyfi forseta:

„Í svari Stefáns kom fram að svarið færi fyrst og fremst eftir heimildarlögunum. Væri um opna heimild að ræða væri öruggara að fara varlega og beita ekki heimild nema um tiltölulega augljósa vanrækslu væri að ræða. Í hlutafélögum og einkahlutafélögum gætu auðveldlega komið fyrir tilvik þar sem félag gæti ekki tryggt jafna stöðu kynja. Það ætti t.d. við þar sem hlutfallskosning er viðhöfð. Við slíkar aðstæður væri tæpast ráðlegt að leggja á dagsektir.“

Herra forseti. Hver ætlar að segja stjórnvaldinu sem leggur á sektina að nú sé ekki ráðlegt að leggja á dagsekt, að verið sé að brjóta þessi lög. Það er tæpast ráðlegt í þessu tilviki. Hver ætlar að koma með þessa uppástungu? Sá sem kærir? Og dagsektirnar halda áfram að tikka. Með leyfi forseta:

„Einnig yrði að gæta að öllum stjórnsýslureglum og í því sambandi væri rétt að skoða stöðu þess stjórnvalds sem leggur á dagsektir og möguleika á að kæra slíkar ákvarðanir til æðra stjórnsýslustigs.“

Svo mörg voru þau orð, herra forseti.

Varðandi þetta síðasta, þ.e. hvernig þetta ætti að gerast hjá stjórnvaldinu og hvernig umgjörðin ætti að vera þá vantar mikið upp á það sem er að sjá í texta frumvarpsins sem hér liggur fyrir, enda segir í umsögn Skattsins, með leyfi forseta:

„Telur ríkisskattstjóri afar áríðandi að hafið sé yfir allan vafa hvenær, hvernig og við hvaða aðstæður skuli beita dagsektum.“

Er það hér í þessu frumvarpi? Nei, það er ekki hér. Það eru engir fyrirvarar á þessu. Ef menn kjósa stjórn sem er ekki með þetta hlutfall og nær ekki þessum mörkum þá er lögð á þá dagsekt. Þá kemur stjórnvaldið til með að leggja á dagsekt og kerran fer af stað. Við tekur einhvers konar kæruferli eða aðfararferli til að innheimta sektir meðan hlutfallið er ekki lagað. Það er engin undantekning. Vinsamlegast bendið mér á ef það er. Getur stjórnvaldið bara sagt sem svo að í þessu tilviki sé betra að gera ekki neitt? Er það? Er einhver undantekning í þessum ákvæðum? Ég held ekki. Ríkisvaldið, herra forseti, er þarna að seilast í eignarrétt manna og um leið að hefta félagafrelsið.

Ég vil hér að lokum lesa upp niðurlagsorð nefndarálits minni hlutans og ítreka þá skoðun mína sem endurspeglast í því:

„Minni hlutinn telur af framangreindum sökum að málið sé ekki tilbúið til afgreiðslu.“ Nauðsynlegt sé — og tek ég þar undir orð hv. þm. Brynjars Níelssonar — að málinu verði vísað aftur til nefndarinnar til nánari umfjöllunar að lokinni 2. umr. um það.