samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn og aftur fyrir spurningar hans. Ég nota orðið Sjálfstæðisflokkur Íslands. Ég hef gert það kannski einu sinni áður, ég nota það iðulega þegar ég er mjög hissa á þeim flokki. (Gripið fram í.) Þá nota ég það, þá er ég mjög hissa. Ég held ég að hafi skýrt ágætlega í ræðu minni áðan að ég las upp — í atvinnuveganefnd, a.m.k. í þessu áliti, voru nöfn þriggja hv. þingmanna í þessum flokki. Til merkis um hversu hissa ég var á því að þeir skyldu hafa látið þetta ganga svona í gegn óbreytt og séu þarna á álitinu, reyndar einhver eða jafnvel fleiri en einn með fyrirvara, notaði ég nú þetta nafn, en hann heitir eitthvað annað en það, þessi virðulegi flokkur.
Hv. þingmaður nefndi líka hvort stjórnarskráin væri einhvers virði nú orðið. Jú, ég tel það. Hún er líka þess virði sem hún er í hugum okkar, hvernig við tölum um hana, hvernig við umgöngumst hana, eins og umræður um þetta málefni sanna. Ég sá ekki betur en að menn hafi komið hér upp þó nokkuð margir í þessu máli og bent á það sem ég hef einnig verið að benda á og það ber vitni um að stjórnarskráin er ekki gleymd. Við höldum hana í heiðri og bendum á ef okkur finnst á hana hallað.
Hvort eignarréttarákvæði sé marklaust í dag. Ég er nokkuð sammála hv. þingmanni um að það sé gengið ansi freklega og nálægt eignarréttarákvæðinu oft og tíðum, ekki bara í þessu frumvarpi heldur oft og tíðum. Ég held að það megi fara að hægja á þeirri vegferð og menn þurfa líka að standa í lappirnar á móti. Hv. þingmaður er nú þekktur fyrir að standa í lappirnar þegar kemur að þeim málum.