samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Ég get tekið undir flest af því sem hann sagði. Þar sem gagnrýni hans beindist að mér og félögum mínum í Sjálfstæðisflokki Íslands vil ég spyrja hann hvort hann sé þá ósammála félögum sínum í Miðflokknum sem sitja í hv. atvinnuveganefnd. Þeir leggjast ekki gegn frumvarpinu sem slíku í því nefndaráliti sem hér um ræðir. En hv. þingmaður talar þannig að ekki er hægt að skilja hann öðruvísi en að hann muni greiða atkvæði gegn frumvarpinu og þar erum við saman í félagi.
Í nefndarálitinu segir að minni hlutinn telji framangreint gefa tilefni til að gera breytingar á frumvarpinu þannig að sveigjanleikinn verði aukinn o.s.frv. Það liggur þá fyrir að Miðflokkur Íslands, a.m.k. fulltrúar Miðflokksins í hv. atvinnuveganefnd, er efnislega sammála frumvarpinu sem hér liggur fyrir en vill gera ákveðnar breytingar á því svo að hægt sé að afgreiða það, og leggur þess vegna til að því verði vísað til nefndar milli 2. og 3. umr.