151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[18:17]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að við í Miðflokki Íslands séum einhuga í þessu máli. Við erum ekki tilbúin að samþykkja afgreiðslu þess með þeim hætti sem hér er nefndur. Þessi tilvitnun hv. þm. Óla Björns Kárasonar í nefndarálit minni hlutans vitnar einungis um það, orðalagið, að bundnar eru vonir við að málið verði lagfært á milli 2. og 3. umr., eins og ítrekaðar óskir hafa komið fram um, þ.e. að því verði vísað aftur til nefndar og verði tekið þar fyrir. Ég er þess fullviss að forseti mun verða við þeim óskum. Þó að ég taki svona til orða erum við í Miðflokki Íslands algerlega sammála markmiðunum. Við erum sammála því að auka beri jafnrétti í stjórnum félaga en við erum bara alls ekki sammála því að það sé gert með þessum hætti, að lagðar séu á dagsektir, eins og ég hef farið ítarlega yfir í ræðu minni; við erum ekki sammála því að gengið sé fram á þennan hátt.