samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er alveg bert að óhamingja Sjálfstæðismanna er mikil í dag og leggst afar þungt á menn og þyngra á suma menn en aðra. Hv. þingmaður ber sig þó karlmannlegar en sumir aðrir sem hér hafa tekið til máls. Ég ætla að leyfa mér að nefna að það munu engar hundakúnstir eða útúrsnúningur af hálfu hv. þm. Óla Björns Kárasonar duga til að snúa því upp á okkur Miðflokksmenn, sem höfum andæft í þessu máli og verið þeir einu sem slíkt hafa gert. Engar slíkar hundakúnstir munu duga til að snúa því upp á okkur að við höfum minnstu tilburði til að styðja þetta frumvarp, minnstu. Þvert á móti hefur eina andófið komið frá Miðflokknum og það hlýtur að vera Sjálfstæðisflokknum mikið umhugsunarefni að fulltrúar allra flokka eru flutningsmenn á þessu frumvarpi nema Miðflokksins, og þrír hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru á meirihlutaálitinu.