samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Heiðarlegur og sanngjarn lestur á áliti minni hlutans getur ekki leitt til neinnar annarrar niðurstöðu en þeirrar að þingmenn minni hlutans telja þetta frumvarp með öllu ótækt, öllu. Það kæmu ekki undir neinum kringumstæðum til greina að samþykkja það. En Sjálfstæðisflokkurinn er í þeim vanda að ætlast til þess að vera kallaður burðarásinn í íslenskum stjórnmálum, kjölfestan, hryggjarstykkið og allt þetta. Á landsfundaríslensku er talað um foringja Sjálfstæðisflokksins. Á hátíðarstundum er talað um að landsfundir flokksins séu hinar eiginlegu þjóðarsamkomur þar sem málefnum þjóðarinnar er ráðið. En núna er Sjálfstæðisflokkurinn í þeirri stöðu að hann er innblandaður í þetta mál þar sem vegið er í allharkalega að eignarréttinum og félagafrelsi, eins og raun ber vitni. Eini flokkurinn sem er heill og óskiptur í þessu máli á Alþingi er Miðflokkurinn.