samvinnufélög o.fl.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður talaði um frelsið. Í mínum huga er þetta mjög skýrt. Án jafnréttis er ekkert frelsi og frelsi án jafnréttis er bara einhver „illúsjón“. Hv. þingmaður talaði um pólitíska rétthugsun. Já, ég er svolítið þreytt á því sama, pólitískri rétthugsun sem kemur hér trekk í trekk. Ég er þreytt á því að það er alltaf sömu þingmennirnir sem hoppa á fætur og tala um pólitíska rétthugsun þegar verið að tala um jafnrétti. Í mínum huga er jafnrétti réttlætismál. Það er svolítið sérstakt að flutningsfólk þessa frumvarps eru allt konur, úr öllum flokkum, líka Sjálfstæðisflokknum. Allt konur. Ég hlusta hér í þingsal í dag, allt karlmenn, bara úr (Forseti hringir.) Miðflokki og Sjálfstæðisflokki, við getum kallað það miðflokk Íslands, (Forseti hringir.) miðsjálfstæðisflokk Íslands, vera að mótmæla skrefum sem við erum að reyna að taka (Forseti hringir.) í átt að auknu jafnrétti og þar með talið auknu frelsi.
(Forseti (GBr): Forseti biður hv. þingmenn að virða hin knöppu tímamörk.)