samvinnufélög o.fl.
Virðulegi forseti. Ef hv. þingmaður áttar sig ekki á því þá er sú lest farin, hún var tekin fyrir um sjö, átta árum síðan. Þetta gildir um 50 manna fyrirtæki og fleiri. Við erum ekki að tala um litlu fyrirtækin, meðalstóru fyrirtækin, heldur stór fyrirtæki, með 50 starfsmenn eða fleiri. Hv. þingmaður var líka mjög virkt á móti jafnlaunavottuninni á sínum tíma. Hvaða jafnréttismálum hefur hv. þingmaður yfir höfuð verið samþykkur? Og svo talar hann um ívilnanir og ég er svo sammála hv. þingmanni að við eigum miklu frekar að beita ívilnunum, miklu frekar. En mín spurning til hv. þingmanns er: Hvaða tillögur hefur hv. þingmaður komið með í formi ívilnana sem ýta undir jafnrétti, sem ýta undir það mikla frelsismál að jafnrétti ríki, m.a. hér á vinnumarkaði í reynd? Hvaða tillögur hefur hv. þingmaður komið með? Og ég vil benda á að Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að vera meira og minna með fjármálaráðuneytið frá árinu 2013. (Forseti hringir.) Hvaða tillögur hefur Sjálfstæðisflokkurinn komið með í reynd í formi ívilnana (Forseti hringir.) til að ýta undir jafnréttismál? Hvaða tillögur?