samvinnufélög o.fl.
Hæstv. forseti. Ég vil bara að minna hv. þingmann á að ég greiddi atkvæði með jafnlaunavottun, að vísu með óbragð í munni. Það er mjög gott að hv. þingmaður tali um að beita einhverjum öðrum aðferðum en refsingum . Þá erum við sammála um það. Förum þá saman í það, Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, kannski Miðflokkurinn, að beita öðrum aðferðum. Greiðum atkvæði gegn þessu. Beitum öðrum aðferðum. Ég skal vera alveg í fremstu röð að beita öðrum aðferðum til að ná þessum markmiðum. Að vísu erum við á fleygiferð að ná þeim en ég skal alveg taka þátt í einhverju meira til þess að ná þeim. En ég ætla ekki að beita menn …(ÞKG: Þið sýnið aldrei frumkvæði, aldrei.) — Það geri ég ekki í neinu. En þetta er auðvitað kjarni málsins og umræðan snýst um það: Eigum við að beita (Forseti hringir.) refsivendi ríkisvaldsins og fingrum þess til að ná svona markmiðum og fara gegn eignarréttinum? Mér heyrist Viðreisn ætla að vera þar. (Gripið fram í.)