samvinnufélög o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni fyrir prýðisgóða ræðu. Það var margt sem vakti athygli í ræðunni en það sem endurómaði kannski sérstaklega var andsvar hv. þingmanns við framsögumann nefndarálits hér í byrjun umræðunnar. Þingmaðurinn leiðréttir mig ef ég hef rangt eftir honum, ég man ekki hvaða hugtak hann notaði akkúrat, en hann ýjaði að því að ekki væri verið að fara nákvæmlega með og notaði, ef ég man rétt, hugtakið fals um samanburð á því regluverki sem nú er talað fyrir og því sem er í Noregi, en það er nú notað sem sérstakur rökstuðningur í þessu ólukkansmáli. Gæti hv. þingmaður kannski aðeins farið á dýptina hvað það varðar þó að einungis sé mínútu til að dreifa? Það er áhugavert ef verið er að beita sem kjarnarökum í málinu einhverju sem kannski stenst ekki.