samvinnufélög o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að þetta sé alveg örugglega yfir þeim mörkum sem hér eru tilgreind, í skráðum félögum. Ef ég man rétt er hlutfallið í félögum sem eru með 250 starfsmenn eða fleiri orðið þetta, það er kannski 39,5%, það er svona u.þ.b. að detta í mark. En ég man eftir því þegar við samþykktum hér lög sem bönnuðu plastpoka fyrir ekki löngu, sem var önnur ólukkans forsjárhyggjulöggjöf. Þá kom fram vel pennafær maður sem skrifaði: Af hverju tekst stjórnmálamönnum alltaf að taka alla gleði út úr jákvæðri þróun í lífinu? Þá var sjónarmiðið það að þessi verulega minnkun á plastpokanotkun væri að nást fram sjálfvirkt. Samfélagið væri að þróast með þeim hætti að menn væru að ná í mark. Þá stíga stjórnmálamennirnir inn og segja: Nú ætla ég að bjarga málinu. Erum við ekki dálítið á þessum stað með þetta mál?