samvinnufélög o.fl.
Hæstv. forseti. Jú, nákvæmlega. Við erum nákvæmlega á þessum stað. Það sem veldur mér áhyggjum er þessi ríka þörf til stjórnsemi af þessu tagi og menn láta engin stjórnarskrárákvæði rugla sig í því. Menn bara vaða áfram, og finnst það allt í lagi af því að markmiðið er svo göfugt. Ég er bara að segja að þegar stjórnmálamenn eru á þessari vegferð þá klingja viðvörunarbjöllur út um allt. Ég get sagt ykkur hér að það gerist ekkert á einni nóttu, en svo allt í einu föttum við bara að þetta er horfið. Eitthvert eignarréttarákvæði, atvinnufrelsisákvæði og tjáningarfrelsisákvæði — þetta skiptir engu máli lengur. Það er af því að við erum alltaf að bjarga einhverju. Það skiptir engu máli hvort um er að ræða almenningsþörf eða ekki eða ríka almannahagsmuni, við gerum bara það sem okkur sýnist. Þetta eru bara stjórnmálin í dag, illu heilli.