151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[19:02]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um samvinnufélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um hlutafélög og lögum um sameignarfélög, viðurlög vegna hlutfalls kynja í stjórn. Ég sit í atvinnuveganefnd og er með fyrirvara við málið í meirihlutaáliti, ásamt þremur öðrum Sjálfstæðismönnum. Í vinnu nefndarinnar kom fram að við vildum vinna þetta lengra og fá frekari upplýsingar til að ræða í nefndinni. Strax í þeirri vinnu, áður en málið gekk til 2. umr., kom fram að það myndi fara aftur til nefndar milli 2. og 3. umr.

Þann 1. september 2013 tóku gildi lög þar sem stjórnum í félögum og sjóðum þar sem fleiri en 50 starfsmenn starfa að jafnaði og þar sem stjórnarmenn eru fleiri en þrír beri að tryggja að hlutfall hvors kyns fyrir sig sé ekki lægra en 40%. Lögin eiga við um alla lífeyrissjóði, hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög og opinber hlutafélög þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn á ársgrundvelli. Þessum breytingum hef ég fagnað en viðra þó áhyggjur mínar af því að þrátt fyrir breytingar á lögunum og fjölgun kvenna í stjórnum fyrirtækja hefur það ekki skilað sér í hærra hlutfalli kvenna í stjórnunarstöðum í fyrirtækjum. Það er ákveðið áhyggjuefni. Til að mynda situr engin kona í forstjórastóli í skráðu félagi í Kauphöll Íslands.

Ég ætla ekki að ræða um viðhorf og væntingar karla og kvenna til kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja. Miklu fremur vil ég spyrja: Er ný lagasetning nauðsynleg? Að jafnaði ætti ekki að hefjast handa við samningu frumvarps fyrr en farið hefur fram mat á nauðsyn lagasetningar. Í slíku mati þarf m.a. að leiða í ljós þær afleiðingar sem samþykkt frumvarps mun hafa í för með sér. Þá þarf að rekja áhrif samsvarandi lagasetningar í þeim löndum sem við berum okkur iðulega saman við og lýsa kostum og göllum þeirra leiða sem til greina koma. Það hefur ekki verið gert með nægilegum hætti í því máli sem við erum að ræða hér. Það er ein af ástæðunum fyrir því að við vorum með fyrirvara á málinu og óskuðum eftir að það myndi ganga til nefndar milli 2. og 3. umr.

Það er hlutverk Fjármálaeftirlitsins að fara með eftirlit með lögum um lífeyrissjóði. Fyrirtækjaskrá fer með eftirlitið samkvæmt lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög og opinber hlutafélög. Í lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, segir í 1. mgr. 63. gr., með leyfi forseta:

„Í stjórnum opinberra hlutafélaga og hlutafélaga þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli skal hvort kyn eiga fulltrúa í stjórn þegar stjórn er skipuð þremur mönnum og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír í slíkum félögum skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%.“

Í nóvember 2018 komst ríkisskattstjóri að þeirri niðurstöðu að líklegt mætti telja að skilgreining starfsmannafjölda við viðmiðið að jafnaði væri algeng ástæða þess að rangar upplýsingar væru veittar til fyrirtækjaskrár. Tilkynningareyðublaði var því breytt á þann veg að upplýsingagjöf til fyrirtækjaskrár er nú byggð á skilgreiningu á lögum um ársreikninga. Þegar fyrirtækjaskráin móttekur tilkynningu um breytingu á stjórn félaga er tilkynningin yfirfarin. Ef hún uppfyllir ekki ákvæði laganna um kynjakvóta er hún ekki skráð í fyrirtækjaskrá nema félagið bæti úr þeim annmörkum. Félögin eru gerð afturreka með skráninguna.

Er ætlunin með frumvarpinu að þvinga fyrirtæki sem hafa verið með óbreytta stjórn í 20 ár til að breyta stjórn? Hver er tilgangurinn? Er það ekki fremur hluthafanna að vera vakandi fyrir því í aðdraganda aðalfunda hvernig stjórn er skipuð? Þá má nefna að með lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 83/2019, og breytingum á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003, hefur fyrirtækjaskrá heimildir til að beita dagsektum ef ekki eru veittar umbeðnar upplýsingar eða kröfum um úrbætur er ekki sinnt innan hæfilegs frests. Þá eru einnig heimildir til þess að beita stjórnvaldssektum ef ríkisskattstjóra eru ekki veittar upplýsingar og ekki tilkynnt um breytta skráningu stjórnar.

Við höfum ákvæði laganna. Við höfum aðila innan kerfisins sem ber að sjá til þess að lögunum sé framfylgt. Þetta mun gerast með eðlilegum hætti. Við eigum að forðast að flækja um of löggjöf um þessi efni. Mikilvægara er að löggjöfin sé skýr og að aðilar beri ábyrgð á því að þeirri löggjöf sem þingið samþykkir sé framfylgt. Því eiga löggjafinn og stjórnvöld ekki að fara í enn frekari íþyngjandi aðgerðir gagnvart atvinnulífinu. Þetta er tóm forræðishyggja og ekki til þess að styrkja atvinnulíf í landinu, sérstaklega á þeim erfiðu tímum sem við lifum nú.

Ég óska eftir því, eins og hefur komið fram hér, að málið verði tekið til hv. atvinnuveganefndar á milli 2. og 3. umr. og kallaðir til gestir. Umræðan hér í kvöld hefur verið mjög góð og sannarlega verður sú vinna nýtt inn í atvinnuveganefnd fyrir 3. umr. í þingsal. Fyrir hana ber að þakka enda hafa komið fram ýmsar upplýsingar í dag sem hjálpa okkur að vinna áfram með málið og ná betri lendingu.