samvinnufélög o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir svarið. Ég er í sjálfu sér engu nær að því undanskildu að það hafi verið mikill þrýstingur á að ná málinu hér inn í salinn til 2. umr. Ég hafði á tilfinningunni að hv. þingmanni liði ekki mjög vel með að útskýra þetta ómögulega mál og á hann alla samúð mína í þeim efnum. En hv. þingmenn sem undirrita nefndarálitið með fyrirvara vegna þessa gera það með galopin augun að senda málið hér inn til 2. umr. vitandi að það er ekki fullunnið. Það er engin spurning í þessu frá mér til hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar, en þetta er auðvitað ekki í lagi. Þetta er bara staðhæfing og yfirlýsing frá mér, það hefði átt að vinna þetta mál miklu betur í nefndinni. Það er t.d. ekki í lagi að upplýsingar séu að koma fram, eins og hv. þingmaður nefndi, í tölvupósti rétt u.þ.b. sem umræðan fer fram til að reyna að bjarga í horn með eitthvað. Við veitum því líka athygli í umræðunni að mikilvæg skrif prófessors Stefáns Más Stefánssonar eru ekki einu sinni hluti af gögnum málsins fyrir almenna þingmenn. Þetta er fyrir neðan allar hellur og þetta er hv. atvinnuveganefnd ekki til sóma. Ég vil bara segja við hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson að þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þrír af níu þingmönnum í nefndinni, hefðu átt að stoppa það að þetta mál kæmi til 2. umr., vinna það betur í nefndinni og taka það síðan til umræðu eftir áramót þegar það væri betur búið. En miðað við það sem hefur komið fram í umræðum hér í dag væru töluverðar líkur á að verulegar breytingar yrðu á málinu ef það yrði ekki bara hreinlega svæft í nefnd.