151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[19:15]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er svo sem ekki miklu við þetta að bæta. Þetta verður unnið frekar í nefndinni. Það hafa komið fram ýmsir punktar í umræðunni hér í dag sem við getum nýtt okkur. Þetta hefur verið ítarleg umræða, með líflegri umræðum þessa hausts eða vetrar hér í þingsal; miklar vangaveltur og margir góðir punktar sem hægt er að vinna með. (Gripið fram í.) Það má örugglega gera mun betur í þessu máli og það er það sem við ætlum okkur að gera í hv. atvinnuveganefnd milli 2. og 3. umr. Við ætlum að kalla eftir frekari gögnum sem snúa að einstökum þáttum. Við vorum að fá póst rétt fyrir þessa umræðu og höfum kallað eftir frekari umræðu um einstaka hluti. Það er margt sem þarf að skoða í þessu máli.