samvinnufélög o.fl.
Virðulegi forseti. Það eru sjö eða átta konur sem flytja þetta mál og gera það af því að þær vilja ýta málum áfram í jafnréttisátt. Okkur hefur þokað áfram en það hefur ekki gerst átölulaust. Það hefur ekki gerst baráttulaust. Ég minntist hér á jafnlaunavottun sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins að hluta til voru á móti, þingmenn Miðflokksins líka. Svo upplifir maður þennan mótþróa hér í þingsal. Ég er fegin því og finnst gott að hv. þingmaður talaði um að jafnréttismál væru ekki forræðishyggja. Ég vil þá spyrja hann: Er hann sammála mér í því að frelsi fylgi jafnrétti? Ef jafnrétti er til staðar, þá er frelsi til staðar.
Talandi um að við séum komin á staðinn: Nei, við erum ekki komin á staðinn. Ef hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins halda að við séum búin að ná jafnrétti þá er það ekki þannig. Ég bið hv. þingmenn að skoða m.a. mismunun á launum kynjanna á vinnumarkaði. Þar er enn stórt bil á milli sem verður að brúa með ráðum og dáð. Ég óttast, bæði í viðbrögðum varðandi þetta mál en líka í umræðunni um fæðingarorlofið, þá nálgun sem ég heyri að sumir í Sjálfstæðisflokknum eru setja fram. Ég óttast þetta líka miðað við þau viðhorf sem gilda á allt öðrum sviðum þar sem ekki er minnst á frelsið. Þá er ég að tala um í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum. Þá er engum frelsisfána veifað af því að þar má ekki ríkja frelsi, þar má ekki ríkja samkeppni. En ef við ætlum að berjast fyrir raunverulegu frelsi í gegnum jafnréttismál með það að markmiði að stuðla að jafnrétti, (Forseti hringir.) því að þannig náum við raunverulegu frelsi, þá er allt gert til þess að stoppa það.
Hæstv. forseti. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki (Forseti hringir.) sammála mér í því að með jafnrétti náum við frelsi í samfélaginu.