151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[19:24]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er kannski ástæðan fyrir því að í vinnu nefndarinnar væri mjög æskilegt að fá meiri upplýsingar um hvernig þróunin hefur verið síðan lögin tóku gildi 2013, sem við erum að ræða hér og bæta í. Ég er sannfærður um að við höfum náð ótrúlegum árangri og það er þróun. Maður myndi vilja sjá tölfræðilegu þróunina líka í þessum málum í staðinn fyrir að við séum endalaust að setja lög í landinu um hluti sem eru raunverulega að gerast og eru jákvæðir. Það er fjöldi sviða og ég hef t.d. verið að reyna að vekja athygli á málefnum ungra drengja í skólakerfinu og annað, við erum með risamál sem snúa líka að jafnréttismálum þar í stóru samhengi. Ég held að sú löggjöf sem við erum nú þegar með í dag nægi til að ná þeim árangri og þeim settu markmiðum sem við ætlum okkur að ná fram með þessari löggjöf. Það þurfi ekki að ganga svona hart fram með þeim hætti sem lagt er til í þessu frumvarpi.