samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Ég verð að segja að mér finnst það með nokkrum ólíkindum að við skulum vera að ræða frumvarp af þessu tagi rétt í miðjum björgunaraðgerðum gagnvart atvinnulífinu og heimilum. Í því ljósi er kannski ekki undarlegt að margir sem fylgjast með störfum okkar hér á hinu háa Alþingi velti fyrir sér hvort við séum virkilega í tengslum við raunveruleikann. Það er nú þannig að fjölmörg fyrirtæki berjast fyrir lífi sínu. Ég hef litið svo á að þessa dagana, þessar vikurnar, þessa mánuðina sé okkar helsta hlutverk í þessum sal að veita þessum fyrirtækjum eitthvert skjól en ekki síður möguleika á því að eiga hér viðspyrnu þegar við komust loksins í gegnum þetta kóf.
En nei, hér á að reiða refsivöndinn hátt á loft. Það á að taka hann fram af fullum þunga, herra forseti. Þó liggur ekkert fyrir, ekki í greinargerð með þessu frumvarpi, ekki í nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar, ekki í neinum þeim umsögnum eða greinargerðum sem ég hef lesið, um það hvaða hugsanlegu áhrif löggjöf af því tagi sem hér um ræðir gæti haft á fyrirtækin og þar með á heimilin. Það verður því seint sagt, herra forseti, að ég fagni frumvarpi af því tagi sem við ræðum hér. Ég veit að við hæstv. sveitarstjórnarráðherra eigum eftir að eiga spjall saman síðar, þó að hann hreyti í mig ónotum hér, varðandi lögþvingun sveitarstjórna. En látum það liggja milli hluta.
Ekki á að koma neinum á óvart að ég sé yfir höfuð á móti lagaákvæðum um kynjakvóta í hlutafélögum, alveg eins og ég er t.d. á móti þeirri hugmynd að einhver léti sér detta það í hug að setja kynjakvóta í framhaldsskóla, í háskóla eða í ákveðnar starfsgreinar. Ákvæði um ákveðinn kynjakvóta í hlutafélögum gengur auðvitað gegn eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar. Það að hafa af einstaklingum réttinn til að ráðstafa hlutafé sínu eins og þeir telja skynsamlegast við atkvæðagreiðslu þegar kemur að skipan stjórna, þegar kemur að því að verja eign þeirra sem er bundin í hlutafé, er auðvitað á skjön við anda stjórnarskrárinnar og allar hugmyndir um sjálfsákvörðunarrétt hvers og eins.
Ég er hins vegar sannfærður um að öll fyrirtæki, a.m.k. öll þau sem ég þekki til — og hef ég sem gamall blaðamaður töluverða reynslu af að fylgjast með og kynna mér fyrirtæki og hef líka notið þess í mínu starfi hér sem þingmaður að kynnast fyrirtækjum og viðhorfi þeirra sem stjórna fyrirtækjum — hafa það að markmiði að velja hæfileikaríka einstaklinga til að stýra fyrirtækjunum, í framkvæmdastjórn, í stjórnir fyrirtækja, óháð kyni. Að þessu leyti fullyrði ég að gamall tími okkar karla er liðinn. Það eru hæfileikarnir sem skipta mestu máli og það eru hæfileikarnir sem ráða hér för.
Er ekki alveg hreint magnað að með lögum um kynjakvóta í hlutafélögum og lögum um hlutafélög og einkahlutafélög er búið að setja glerþak á konur, þvert á þann tilgang sem menn sögðust hafa með setningu þeirra laga? Þetta fengu konur t.d. að reyna þegar kosið var í stjórn Vátryggingafélags Íslands árið 2016. Þar ætluðu hluthafarnir að kjósa konur í yfir 60% stjórnarsæta. Það var ólöglegt, herra forseti. Þar með byrjuðu lögin strax að vinna gegn því markmiði að auka hlut og áhrif kvenna í íslensku atvinnulífi. Samkvæmt laganna hljóðan voru sem sagt of fáir karlar í stjórn þess hlutafélags, fjórar konur og einn karl og það mátti ekki. Það mátti ekki. Hluthafar Vátryggingafélags Íslands máttu ekki skipa til verka hæfileikaríkustu einstaklingana sem þeir treystu til að fara með æðsta vald fyrir hluthafa sem er fólgið í stjórn félagsins.
Er nema furða þótt ég hafni slíkum lögum, herra forseti? Ég hef bara meiri trú á íslensku viðskiptalífi en svo að neyða þurfi menn, hluthafa, til að taka skynsamlegar ákvarðanir. Og skynsamlegar ákvarðanir í þessum efnum fela auðvitað í sér að finna hæfileikaríkasta fólkið sem völ er á. Það vill bara svo til að oft og tíðum eru það konur. Vilji hluthafar, eigendur fyrirtækis, skipa þannig til verka að þar sitji eingöngu konur í stjórn getur það ekki verið vilji löggjafans að koma í veg fyrir slíkt. Stundum er þetta öfugt, þ.e. að það eru karlar. En það verður þá bara að fá að vera svo. Og hugsið ykkur, ef konur taka sig saman, stofna fyrirtæki — sem þær gera og hafa gert og hafa náð alveg ótrúlegum árangri — og þær ná of miklum árangri, of góðum árangri, fyrirtækið vex og dafnar og innan nokkurra ára verða starfsmennirnir orðið 50, þá verða völdin tekin af þessum konum, þessum frumkvöðlum, og þeim sagt: Nei, bíðið nú aðeins. Þið megið ekki ráða för vegna þess að nú þurfa karlar að koma að verki. Nú þurfa karlar að koma að verki, herra forseti.
Í mínum huga er þetta frumvarp, þar sem beita á fyrirtæki dagsektum með þeim hætti sem hér er lagt til, í fyrsta lagi óframkvæmanlegt. Fyrir utan að það byggir á þeirri hugmyndafræði að rétt sé að takmarka ráðstöfunarrétt einstaklinga og svipta þá ákvörðunarrétti í eigin málum. Flest í þessu frumvarpi er vanhugsað og ekki hafa flutningsmenn haft fyrir því að fara yfir og svara gagnrýni og/eða ábendingum um ágalla frumvarpsins þegar það kom fram hér á fyrri þingum, a.m.k. tvisvar.
Í frumvarpinu sem við ræðum er sett inn eitthvert óljóst ákvæði um fjárhagslegan styrk sem er ekki með neinum hætti skilgreindur í frumvarpinu, þ.e. að leggja skuli á dagsektir og heimilt sé að taka tillit til fjárhagslegs styrks fyrirtækisins. Í greinargerð með frumvarpinu er engin tilraun gerð til að veita leiðbeiningu um við hvað sé átt. Það verða því engin lögskýringargögn til þegar kemur að því að ákvarða fjárhagslegan styrk og hvað felist í því sem á þó að vera grunnur að dagsektargreiðslum. Nefndarálit meiri hlutans sem liggur hér fyrir veitir heldur enga leiðsögn, svarar engu um hvernig fjárhagslegur styrkur fyrirtækis er metinn. Fjárhagslegur styrkur er misjafn, ekki aðeins eftir fyrirtækjum heldur ekki síður eftir atvinnugreinum. Í einni atvinnugrein þarf töluvert mikinn fjárhagslegan styrk, t.d. í áhætturekstri, við getum nefnt flugfélag, við getum nefnt sjávarútvegsfyrirtæki, en það þarf kannski allt annan mælikvarða á fjárhagslegan styrk þegar kemur að verslun. Bifreiðaverkstæði sem sjálfstæði atvinnurekandinn rekur getur verið með eigið fé upp á 50 millj. kr. og er fjárhagslega sterkt. Fyrirtæki í sjávarútvegi sem er með 500 millj. kr. í eigið fé getur hins vegar verið fjárhagslega veikt, herra forseti. Það sem meira er, það sem gerir þetta flóknara, er að hin bókhaldslega tala, þ.e. ársreikningur fyrirtækisins, gefur ekki heldur í öllum tilfellum rétta mynd af fjárhagslegum styrk. Það geta t.d. verið óefnislegar eignir og menn geta deilt um það, t.d. geta verið eignir sem hafa verið að fullu afskrifaðar o.s.frv. Eins og kom fram í andsvörum hv. framsögumanns nefndarálits meiri hluta atvinnuveganefndar hér fyrr í dag þá er ekki hægt að fá neina skýringu frá flutningsmönnum eða þeim sem standa að þessu frumvarpi um hvað sé átt við þegar kemur að fjárhagslegum styrk vegna þess að hann er ekki algildur, hann gengur ekki þvert á fyrirtæki eða atvinnugreinar. Ég fékk engin svör við því af hverju flutningsmenn telja að 156. gr. hlutafélagalaga og 130. gr. einkahlutafélagalaga dugi ekki til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt.
Það er alveg skýrt að þau félög sem falla undir kynjakvótaákvæðin eiga ekkert val. Þeim ber að fara eftir þeim lögum og þeim ber að senda tilkynningar, lögum samkvæmt, til hlutafélagaskrár og sundurgreina m.a. hverjir sitja þar í stjórn og hvert kynjahlutfallið er. Ef menn senda ranga tilkynningu, fara ekki eftir ákvæðum hlutafélagalaga eða vanrækja að senda þær tilkynningar sem hlutafélaginu ber, m.a. um skipan stjórnar, er hægt að beita viðkomandi hlutafélag sektum og forráðamenn geta horfst í augu við að þurfa að sæta jafnvel allt að árs fangelsi. En þetta nægir ekki. Þessu til viðbótar ætla flutningsmenn að taka upp dagsektir sem eiga síðan með einhverjum hætti að taka mið af einhverju sem ég gerði að umtalsefni áðan og þeir kalla fjárhagslegan styrk. Meira að segja flutningsmennirnir sjálfir vita ekki hvað felst í þessum orðum. Það sem verst er er að ekki er gerð tilraun til þess, í meðförum nefndarinnar, að reyna að skilgreina hvað felst í þessum orðum sem allt á þó að byggjast á.
Herra forseti. Almennt er ég þeirrar skoðunar að halda eigi í heiðri að einkafyrirtæki geti tekið þær ákvarðanir sem þau telja þjóna hagsmunum sínum best. Ég er algerlega sannfærður um að geri menn það þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því sem sumir í þessum sal kalla fjölbreytileika. Það getur þýtt ýmislegt og ólíkt hjá hverjum og einum. Fjölbreytileiki felst ekki bara í því að hafa karla og konur heldur líka í bakgrunni stjórnarmanna, menntun, reynslu, aldri o.s.frv., jafnvel áhugamálum. Fjölbreytileiki er ekki aðeins að hlutfall kynja í stjórnum fyrirtækja sé jafnt. Ef tryggja á fjölbreytileika skulum við fara að ræða það að aldursgreina stjórnir og hafa ákvæði um að þar sé ákveðið hlutfall eldri borgara, ákveðinn hluti fólks undir þrítugu og þar fram eftir götunum.
Hér var áðan talað um jafnrétti og þá segi ég: Af hverju er jafnrétti milli kynjanna það eina sem menn hafa áhyggjur af? Af hverju hafa menn ekki jafnrétti þegar kemur að búsetu? Af hverju setjum við ekki ákvæði um að hlutafélög sem ná ákveðinni stærð skuli hafa ákveðna dreifingu stjórnarmanna um allt land, ákveðna dreifingu þegar kemur að aldri, þegar kemur að menntun o.s.frv.? Nei, herra forseti, þegar upp er staðið eigum við að treysta samborgurum okkar. Við eigum að treysta þeim sem stýra hlutafélögum, sem eiga og hafa lagt allt sitt undir í rekstri hlutafélaga, til að taka skynsamlegar ákvarðanir. Þær ákvarðanir sem þeir taka af sjálfselsku sinni eru auðvitað bundnar við það að finna hæfileikaríkasta fólkið. Og það vill svo til að með breytingum sem orðið hafa undanfarna áratugi er það nú þannig, og það hefur orðið mín reynsla, að hæfileikarnir liggja ekki síst hjá konum. Við sjáum t.d. hvaða þróun hefur átt sér stað í æðri menntun hér þar sem konur eru orðnar í miklum meiri hluta og nefni ég þar Háskóla Íslands.
Ég sé að tími minn er á þrotum en ég kemst þó ekki undan því að víkja aðeins að minnihlutaáliti atvinnuveganefndar, hv. þm. Ólafs Ísleifssonar og Sigurðar Páls Jónssonar. Ég verð að segja þeim það til hróss að þeir voru þó að vinna heimavinnuna sína. Ég vek athygli þingheims á því sem kemur fram í nefndarálitinu þar sem vitnað er í Stefán Má Stefánsson. Ég hefði viljað að öll svör Stefáns Más Stefánssonar birtust undir málinu í heild. En af einhverjum ástæðum sem ég kann ekki að skýra er það ekki. En ég vona að þessi varnaðarorð Stefáns Más verði a.m.k. til þess að gefa mönnum ástæðu til að hugsa áður en þeir leggja þessu frumvarpi lið.