samvinnufélög o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni ræðuna. Hún var alveg prýðileg og ég er sammála mörgu af því sem þar kom fram. Hafandi verið fyrir ekki löngu síðan starfandi í umhverfi þar sem ég var framkvæmdastjóri fyrir fyrirtæki sem var með einmitt yfir 50 starfsmenn þá á maður auðvelt með að máta þessar reglur á sig og við erum á mjög undarlegum stað með þetta mál.
Hv. þingmaður fór ágætlega yfir það í ræðu sinni hversu vanreifað þetta mál er, hversu mikið er eftir af vinnu við það og ég sagði í andsvari fyrr í dag að ég teldi töluverðar líkur á að algerar grundvallarbreytingar hefðu orðið á málinu ef það hefði verið unnið meira í nefndinni og mögulega hefði það aldrei komið til 2. umr., slíkar eru athugasemdirnar. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann kunni einhverjar skýringar á því hvers vegna við erum búin að vera hér í allan dag að ræða þetta hér um bil óunna mál. Það er algerlega óskiljanlegt eins og hv. þingmaður kom inn á hér undir lokin að mál eins og sjónarmið prófessors Stefáns Más Stefánssonar séu ekki hluti af gögnum málsins. Nefndarmenn sem skrifuðu undir álitið með fyrirvara segja að gögn hafi verið að berast núna bara korteri áður en umræður hófust. Kann hv. þingmaður, sem er nú formaður hv. efnahags- og viðskiptanefndar, einhverja skýringu á því að við stöndum hér í dag og ræðum þetta mál?
(Forseti (SJS): Forseti féllst nú fúslega á að hv. þingmaður veitti andsvar við ræðunni af því að ekki er um flokksbræður að ræða en miðað við málflutninginn er það á grensunni að hér sé ekki samsvar á ferðinni, svo sammála virtust hv. þingmenn vera.) (Gripið fram í.)