samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Ég get ekki verið alveg jafn stuttaralegur og í fyrra andsvari og ég biðst velvirðingar á því.
Ég ætla ekki að reyna að snúa út úr spurningunni, hv. þm. Bergþór Ólason, ég er hins vegar þannig að ég tala fyrst og síðast í eigin nafni. Ég hef reynt að forðast að tala fyrir hönd annarra þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Ég bendi t.d. á að einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins er flutningsmaður á þessu frumvarpi og ég held að það sé ágæt regla að menn fái frelsi til að gera grein fyrir eigin skoðunum og allra síst held ég að félagar mínir í Sjálfstæðisflokknum — sumir hverjir, ekki allir — séu nú tilbúnir til að láta mig fá það verkefni að tala fyrir þeirra hönd. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur hins vegar ekki mótað neina afstöðu til þessa máls í heild. Hér tala menn sem einstaklingar. Þetta er líka þingmannafrumvarp. En ég hygg að þegar upp er staðið sé ekki langt á milli viðhorfa minna og viðhorfa félaga minna sem eru með fyrirvara á nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar í þessu máli. Að öðru leyti vísa ég bara á hvern og einn. Ég hygg hins vegar að það sé samhljómur, a.m.k. þegar kemur að málflutningi hv. þm. Brynjars Níelssonar, hafi ég skilið ræðu hans rétt. Ég hygg að ég geti tekið undir flest ef ekki allt sem hann sagði þar og vona ég að það sé gagnkvæmt.
(Forseti (SJS): Umræðu um 7. dagskrármálið er nú frestað og hefur framsögumaður málsins upplýst mig um að heppilegast sé að það sé kallað aftur til nefndarinnar á þessu stigi og verður það þá gert. Umræðunni er frestað og málið gengur aftur til hv. atvinnuveganefndar.)