störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ein mest lesna frétt morgunsins er án efa um hina níræðu Margréti Keenan í Coventry í Bretlandi sem varð í morgun fyrsti Bretinn til að vera bólusett fyrir Covid-19. Brött og jákvæð hvatti Margrét alla, sem fá tækifæri til þess, til að skella sér í bólusetningu. Fréttir síðustu daga blása manni sannarlega von í brjóst. Í þessari viku verður skrifað undir samning Íslands um bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer. Smitum fer fækkandi. Bólusetningar eru farnar af stað í nokkrum löndum og svo eru jólin rétt að koma.
Í morgun kynnti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tilslakanir í sóttvarnaaðgerðum. Þannig mun samkomubann áfram miðast við tíu manns en verslanir og veitingastaðir fá meira andrými eins og kallað hefur verið eftir. Þá vakti það eflaust fögnuð margra að sundlaugar munu opna á ný og að aukið svigrúm er til æfinga í íþróttum. Þá eru líka sviðslista- og menningarviðburðir leyfðir en þó með nokkrum takmörkunum. Þetta eru varkár skref en þau skipta okkur öll máli. Þau skipta bæði máli svo að fólk fái aukið andrými en einnig er mikilvægt að við göngum ekki of langt, að við stígum ekki of stór skref. Við höfum lært það af reynslunni að það getur skipt gríðarlega miklu máli.
Af því að það styttist í jólin og margir höfðu eflaust bundið vonir við að fleiri en tíu mættu koma saman í heimahúsum yfir hátíðarnar þá er lag að hafa hugfast hið góða íslenska orðatiltæki, að það er oft gott að ganga hægt um gleðinnar dyr. Við munum ná í mark í þessu langhlaupi, það skráði sig samt enginn til leiks í því. En við skulum virkja þá von sem við fyllumst með þessum góðu fréttum öllum og nýta hana til að komast síðasta spölinn því að þannig farnast okkur best.